Innlent

Tveir greindust innan­lands og fimmtán á landamærum

Atli Ísleifsson skrifar
Alls hafa um 5.900 manns smitast af kórónuveirunni hér á landi frá upphafi faraldursins.
Alls hafa um 5.900 manns smitast af kórónuveirunni hér á landi frá upphafi faraldursins. Vísir/Vilhelm

Tveir greindust með kórónu­veiruna innan­lands í gær. Annar þeirra sem greindist var í sóttkví en hinn ekki.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á síðunni covid.is. Alls eru nú nítján á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og enginn á gjörgæslu. Í gær voru tuttugu á sjúkrahúsi og enginn á gjörgæslu.

Fimmtán greindust smitaðir á landamærum í gær – níu með virkt smit í fyrri skimun, einn mældist með mótefni og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í tilvikum fimm.

149 manns eru nú í einangrun, samanborið við 143 í gær. Þá eru 320 í sóttkví í dag, samanborið við 352 í gær. 2018 eru nú í skimunarsóttkví.

Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur, er nú 18,8, en var 20,5 í gær. Nýgengi landamærasmita er nú 23,2, en var 21,5 í gær.

Alls hafa 5.912 manns greinst með kórónuveiruna hér á landi frá því faraldurinn hófst í lok febrúar. Þá hafa 29 dauðsföll verið rakin til Covid-19 á Íslandi frá upphafi faraldursins.

Alls voru tekin 729 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 886 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru tekin 46 sýni í sóttkvíar- og handahófsskimun og 300 í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×