Innlent

Festi undurfalleg eftirköst óveðursins fyrir austan á filmu

Eiður Þór Árnason skrifar
Sannkölluð íslistaverk mátti sjá á víð og dreif á Breiðdalsvík í dag.
Sannkölluð íslistaverk mátti sjá á víð og dreif á Breiðdalsvík í dag. Benedikt Jónsson

Mikið aftakaveður var á Austurlandi í gær og voru appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Í gærmorgun mældist vindur þar á bilinu 28 til 32 metrar á sekúndu auk þess sem íbúar fundu fyrir 10 til 12 stiga frosti og snjókomu. 

Benedikt Jónsson náði stórglæsilegum myndum af eftirköstum óveðursins í dag. Ljósmyndirnar tók hann á Breiðdalsvík í Fjarðabyggð þar sem hann er búsettur.

Benedikt segir í samtali við Vísi að hann hafi haldið sig heima þangað til veðrinu slotaði en kíkt út í dag til að fanga hina einstöku náttúrufegurð sem hafði myndast síðastliðinn sólarhring eða svo.

Benedikt Jónsson
Benedikt Jónsson
Benedikt Jónsson
Benedikt Jónsson
Benedikt Jónsson
Benedikt Jónsson
Benedikt Jónsson

Tengdar fréttir

Kafarar sendir  að flakinu í fyrramálið til að koma í veg fyrir olíuleka

Viðbragðsaðilar vakta nú fóðurpramma Laxa fiskeldisstöðvar sem sökk í Reyðarfirði í nótt með tíu þúsund lítra af díeselolíu. Kafarar verða sendir að flakinu til að reyna að loka fyrir olíuleka í fyrramálið. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir þetta mikið tjón og í framhaldinu verði farið yfir alla verkferla.

Farið í yfir 60 verk­efni í af­taka­veðri á Austur­landi

Nær allar björgunarsveitir á svæðinu milli Þórshafnar og Djúpavogs hafa verið kallaðar út á einhverjum tímapunkti í dag vegna óveðurs. Voru verkefnin orðin ríflega 60 talsins á Austurlandi um klukkan 16 í dag. Aftakaveður hefur verið í landshlutanum og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins.

„Hér er snarvitlaust veður“

Aftakaveður er á Austurlandi og appelsínugular veðurviðvaranir í gildi á öllum austurhelmingi landsins. Bátar hafa losnað frá bryggju, rúður sprungið og þakklæðningar losnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×