Lífið

„Ólýsanleg tilfinning“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daníel, Samúel, Mario, Kjartan og Kristján eru saman í þungarokksveitinni Cult of Lilith.
Daníel, Samúel, Mario, Kjartan og Kristján eru saman í þungarokksveitinni Cult of Lilith.

„Við erum hrikalega ánægðir að ná að landa samningi hjá Metal Blade. Þetta er náttúrulega einn stærsti útgefandi þungarokks í heiminum í dag og að vera á mála hjá sama útgefanda og mörg af okkar uppáhalds hljómsveitum er ólýsanleg tilfinning,“ segir Samúel Örn Böðvarsson bassaleikari þungarokksveitarinnar Cult of Lilith sem hefur skrifað undir alþjóðlegan plötusamning við bandaríska útgáfurisann Metal Blade Records.

„Við erum ótrúlega stoltir af þessari plötu og getum ekki beðið eftir að leyfa fólki að heyra.”

Sveitin var stofnuð árið 2015 og dregur innblástur sinn frá ýmsum áttum. Sveitin hefur getið sér gott orð í íslensku þungarokki og gaf út smáskífuna Arkanum árið 2016 sem fékk lof gagnrýnenda.

Tónlist sveitarinnar blandar saman framsæknu dauðarokki við klassíska tónlist sem og barokki og flamenco. Hljómsveitin hefur deilt sviði með öllum helstu þungarokksveitum landsins og hitaði meðal annars upp fyrir þýsku öfgarokksveitina Defeated Sanity árið 2017.

Cult of Lilith hóf upptökur á sinni fyrstu breiðskífu í lok árs 2018 og lauk upptökum hennar í byrjun árs 2019. Um hljóðblöndun sá Dave Otero hjá Flatline Audio í Denver, Colorado en hann hefur séð um hljóðblöndun fyrir bönd eins og Cattle Decapitation og Archspire sem aðdáendur öfgarokks ættu að kannast vel við. Áætlað er að platan komi út seinna á árinu.

Sveitina skipar þá:

Daníel Þór Hannesson – Gítar

Kristján Jóhann Júlíusson – Gítar

Samúel Örn Böðvarsson – Bassi

Kjartan Harðarson – Trommur

Mario Infantes Ávalos – Söngur






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.