Biður almenning um sýna fólki í áhættuhópum virðingu Sylvía Hall skrifar 19. mars 2020 19:57 Sarah Hyland fer með hlutverk Haley Dunphy í Modern Family. Vísir/Getty
Leikkonan Sarah Hyland, sem þekktust er fyrir hlutverk sitt í þáttunum Modern Family, segist vera mjög meðvituð um hreinlæti vegna kórónuveirufaraldursins sem veldur COVID-19 sjúkdómnum. Hyland er sjálf í áhættuhópi og biður fólk um að virða það að sumir eru viðkvæmari en aðrir fyrir veirunni. „Segjum að einhver fái sólarhringspest, þá fæ ég það í viku eða lengur. Það er mjög hættulegt fyrir mig,” sagði Hyland í hlaðvarpinu Brad Behavior. Sjá einnig: Sarah Hyland opnar sig um veikindin og sjálfsvígshugsanir Hún segist vera mjög kvíðin vegna ástandsins sem bæti gráu ofan á svart, þar sem hún sé með heilsukvilla sem geti versnað ef hún er undir miklu álagi. Hún reyni því eftir bestu getu að halda ró sinni. „Mitt leikplan núna er að halda mig heima. ” Vegna undirliggjandi sjúkdóma þarf Hyland reglulega að fara út úr húsi til þess að hitta lækni. Þá passi hún alltaf að vera með hanska og andlitsgrímu. Það valdi henni þó vonbrigðum að sjá annað fólk taka ástandinu af léttúð. „Það sem mér finnst mest pirrandi núna er ungt, heilbrigt fólk sem er að hamstra í matvörubúðum og apótekum,” segir hún og bætir við að það bitni mest á eldra fólki sem sé kannski ekki í þeirri aðstöðu að komast í verslun hvenær sem er. Þá hvetur hún fólk til þess að hjálpa þeim sem standa höllum fæti ef það hefur möguleika á því. „Ég held að þetta sé mikilvægur tími til þess að tileinka okkur samkennd, ást og örlæti. Lærum eitthvað af þessu. Við erum að horfa fram á það að fólk gæti dáið og ég held að þetta sé tíminn til þess að standa saman. ”
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Hollywood Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira