Fyrsta tilfellið staðfest á Grænlandi Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2020 15:56 Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands. EPA/CHRISTIAN KLINDT SOELBECK
Yfirvöld Grænlands hafa greint fyrsta tilfelli Covid-19, sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur, þar í landi. Kim Kielsen, forsætisráðherra Grænlands, tilkynnti þetta á blaðamannafundi í dag og sagði að verið væri að grípa til aðgerða vegna veirunnar. Kielsen sagði sérstaka þörf á því að standa vörð um aldraða og veika og ganga úr skugga um að þau smitist ekki, samkvæmt frétt Sermitsiaq. Henrik L. Hansen, landlæknir, sagði á blaðamannafundinum að búið væri að framkvæma margar skimanir á Grænlandi. Sá smitaði hafi verið á ferðalagi erlendis og sé nú í Nuuk þar sem hann hefur verið i heimasóttkví ásamt fjölskyldu sinni. Því er talið ólíklegt að viðkomandi hafi smitað aðra. Hansen sagði að á næstu þremur mánuðum mætti búast við frekari smitum erlendis frá og því væri miilvægt að takmarka komur til landsins. Ekki stendur til að loka skólum og sagði Hansen betra að hafa ungt fólk þar en að hafa marga inn í litlum herbergjum í heimahúsum. Kielsen sagði þó að viðbrögð yfirvalda væru í sífelldri endurskoðun.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Grænland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Sjá meira