Innlent

Krabbamein skorar Þórunni „aftur á hólm“

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Þórunn Egilsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Vísir

Þórunn Egilsdóttir, þigflokksformaður Framsóknarflokksins, var lögð inn á Sjúkrahúsið á Akureyri 22. desember og hóf hún lyfjameðferð vegna krabbameins í gær. Þórunn hefur áður glímt við krabbamein en hún greinir frá því á Facebook í dag að meinið hafi aftur skotið upp kollinum.

„Ég ætla að einbeita mér núna að þessu verkefni og fjölskyldunni,“ segir Þórunn í samtali við Vísi. Varamaður hennar mun því taka sæti á Alþingi þegar þing kemur saman á nýju ári.

„Öllum að óvörum hefur Boðflennan skorað mig aftur á hólm. Ég taldi þessari glímu lokið. Hress og kát ætlaði ég að takast á við ögrand verkefni í vinnunni og njóta lífsins með fjölskyldunni. Nú er ljóst að verkefnin verða öðruvísi en alltaf er ég með mína þéttu fjölskyldu og vini með mér. Fyrir það er ég óendanlega þakklát,“ skrifar Þórunn í færslu sinni á Facebook.

Hún hafi haldið öðruvísi jól en venjulega þetta árið. Hún dvelji við einstaka umönnun hjá góðu fólki á sjúkrahúsinu en hafi getað átt indæl jól með fjölskyldunni. 

„Krabbameinið hefur stungið sér í lifrina og hún er illa farin,“ skrifar Þórunn. „Keik vil ég mæta þessu verkefni eins og öðrum. Læknunum treysti ég til að lækna mig og mitt er að sjá um að hafa hausinn rétt skrúfaðan og horfa fram á við.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×