Innlent

Tólf greindust með veiruna innanlands í gær

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
visir-img
Vísir/Vilhelm

Tólf greindust með kórónuveiruna veiruna innanlands í gær. Níu þeirra voru í sóttkví við greiningu, eða 75 prósent, og þrír voru utan sóttkvíar.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is.

Alls eru 572 í sóttkví og 149 í einangrun. 2.236 eru í skimunarsóttkví. Þá eru 24 á sjúkrahúsi, þar af einn á gjörgæslu.

Fjórir greindust með virkt smit í landamæraskimun og beðið er niðurstöðu mótefnamælingar hjá sex einstaklingum.

Nýgengi innanlandssmita er nú 29,7 en var 28,6 í gær.Nýgengi landamærasmita er 15,5 en var 15,8 í gær.

1.340 einkennasýni voru tekin innanlands í gær og fjórtán sýni voru tekin í skimun á vegum Íslenskrar erfðagreiningar. Þá voru tekin 830 sýni við landamæraskimun.

Alls hafa 5.683 greinst með kórónuveiruna frá því að faraldurinn hófst hér á landi í lok febrúar. 28 manns hafa látist vegna Covid-19, sjúkdómsins sem veiran veldur.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×