„Það eru margir sem þurfa að fá smá viðbótar ljós í hversdaginn“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 17. desember 2020 13:01 Sólveig Kolbrún Pálsdóttir er markaðs- og kynningarstjóri Ljóssins. Áður en hún tók við því starfi hafði hún nýtt sér þjónustu Ljóssins í kjölfar þess að hún greindist með krabbamein. vísir/vilhelm Í kvöld klukkan 19:30 fer fram árlegt aðventukvöld Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda. Þetta árið fer viðburðurinn fram í streymi á Facebook-síðu Ljóssins og bjóða þau alla landsmenn velkomna. „
Tryggvi Rafnsson leikari mun stýra stundinni með sinni einstöku lagni, Selma Björns og Vignir syngja okkur í jólaskap, Beggi Ólafs les úr bók sinni 10 skref í átt að innihaldsríkara lífi, Gerður Kristný les úr nýrri barnabók sinni Iðunn & afi pönk, Bjarni Fritzson les úr nýjustu bók sinni um Orra Óstöðvandi og Kristín Sigurðardóttir les úr bók sinni Blóðrauður sjór. Við vonum að þið takið þátt með okkur heima í þessari hátíðlegu stund.“ Viðburðurinn, sem stendur í um klukkustund, er sniðinn svo að bæði ungir sem aldnir geti notið stundarinnar saman. „Á hverju ári höldum við hátíðlegt kvöld fyrir alla þjónustuþega Ljóssins. Í ljósi aðstæðna í ár getum við ekki tekið á móti fólkinu okkar í hús en vildum ekki hætta við viðburðinn. Við ákváðum því að fá gott fólk með okkur í lið og streyma gleðinni faglega heim til allra á Facebook-síðu Ljóssins. Það gefur okkur einnig tækifæri á að færa þjóðinni allri gleðina heim en við vitum að það eru margir sem þurfa að fá smá viðbótar ljós í hversdaginn“ segir Sólveig Kolbrún Pálsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Ljóssins. Aðventukvöld Ljóssins fer fram í streimi á Facebook klukkan 19:30 í kvöld.Ljósið Umbreyttu þjónustunni Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra. Í Ljósinu fá einstaklingar þverfaglega endurhæfingu sem gerir þeim kleift að takast á við lífið í breyttum aðstæðum. „Heimsfaraldurinn hefur haft mikil áhrif á starfsemina en við höfum gert allt sem mögulegt er til að halda uppi þjónustustigi og að okkar mati hefur það tekist mjög vel,“ segir Erna Magnúsdóttir forstöðukona Ljóssins í samtali við Vísi. „Í upphafi ársins byrjuðum við að plana heilmikla afmælisdagskrá en í ár er Ljósið 15 ára. Þegar heimsfaraldurinn skall á varð okkur strax ljóst að við yrðum að skipta um gír og í stað allra þessara skemmtilegu viðburða sem stóðu til myndum við setja allan okkar fókus á þá fórum við í að umbreyta þjónustunni okkar. Frá því í mars höfum við innleitt stafrænu lausnina Proency til að meta andlega heilsu, við byrjuðum að veita fjarviðtöl í gegnum Kara Connect, settum rafrænan kynningarfund í loftið og bjóðum nú upp á rafræna skráningu í þjónustu í Ljósið. Í haust færðum við öll fræðslunámskeið í stafrænt form og það hefur gefist vel. Við erum nú með aukna áherslu á að fólkið okkar haldi endurhæfingunni áfram heima og höfum því boðið öllum að ganga í Facebook-hóp sem heitir Ljósið heima en þar er dagskrá með æfingum, pistlum, streymum og fjarfundum í hverri viku. Að auki breyttum við árlegu tímariti Ljóssins, Ljósablaðinu í stafræna útgáfu og nú næst ætlum við að bjóða öllu okkar fólki að njóta aðventugleðinnar okkar heima í gegnum Facebook og auk þess allri þjóðinni að njóta með okkur.“ Enn meiri einangrun Erna segir að þau hafi gert allt til að halda starfseminni gangandi fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur, þó að það sé vissulega með breyttu sniði. „Eins og gefur að skilja er færra fólk að koma í hús á vikulega kynningarfundi og að auki þá gera samkomutakmarkanir það að verkum að við getum ekki tekið á móti fólki með sama hætti og áður. Í upphafi faraldursins voru yfir 500 manns sem sóttu mánaðarlega þjónustu í Ljósið. Rafræn þjónusta hefur tekið við að mörgu leiti en við fundum það vel í sumar, þegar vel gekk að halda faraldrinum í skefjum, að fjöldi koma í hús yfir sumartímann hefur aldrei verið jafn mikill. Þannig takturinn í gegnum faraldurinn er sannarlega breyttur en við erum að gera okkar besta að mæta þörfum okkar þjónustuþega.“ Áhrif útbreiðslu kórónuveirunnar hér á landi hefur haft töluverð áhrif á líðan skjólstæðinga Ljóssins síðustu mánuði. „Heimsfaraldurinn hefur gert það að verkum að margir, sem undir venjulegum kringumstæðum væru að passa upp á sína heilsu sökum ónæmisbælingar og annara ástæðna, þurfa að halda sig í enn meiri einangrun. Þetta hefur auðvitað mikil áhrif á þá aðila og gerir daglegt líf þeirra enn flóknara. Þetta eykur á sama tíma áhyggjur aðstandenda en Ljósið veitir aðstandendum einnig stuðning.“ Ljósið þjónustar þá sem greinast frá 16 ára aldri og sinna einnig fjölskyldumeðlimum en nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefsíðu Ljóssins. Viðburðurinn hefst klukkan 19:30 í kvöld og má finna frekari upplýsingar á Facebook síðu Ljóssins.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Eva Marie Saint er látin Lífið Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Lífið Fleiri fréttir Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Sjá meira