Hálendið getur ekki beðið lengur Auður Önnu Magnúsdóttir skrifar 15. desember 2020 13:00 Hvers vegna þarf að stofna þjóðgarð á hálendinu núna? Má það ekki bíða í nokkur ár svo ná megi þessari eftirsóttu „breiðu sátt” þar sem allir eru ánægðir? Svarið er því miður nei! Ýmsar ógnir steðja að hálendi Íslands og með því að klára málið síðar er hætt við að gildi og verðmæti hálendisins verði rýrt enn frekar. Til að ná sátt þurfa allir að slá af kröfum sínum. Við höfum Alþingi til að ljúka málinu í kjölfar upplýsandi umræðu. Stofnun Hálendisjóðgarðs er besta leiðin sem við þekkjum til varanlegrar verndar og sjálfbærrar nýtingar þjóðlendna á hálendinu. Hálendið er auðlind og sameign þjóðarinnar Með stofnun þjóðgarðs á hálendi Íslands er verið að vernda eina stærstu auðlind Íslands og stýra umgengni og nýtingu á henni. Styrmir Gunnarsson, fv. ritstjóri Morgunblaðsins, hefur líkt stofnun þjóðgarðsins við það þegar Íslendingar færðu fiskveiðilögsöguna út í 200 mílur. Hálendisþjóðgarði yrði stýrt með verulegri valddreifingu þar sem ákvarðanir yrðu teknar í svæðisstjórnum, í aðliggjandi sveitarfélögum, í stjórn þjóðgarðsins og á landsvísu af viðkomandi ráðherra. Þannig munu tæplega 100 einstaklingar, fulltrúar sveitarfélaga og félagsamtaka móta þær reglur sem koma til með að gilda. Þetta er mun lýðræðislegra fyrirkomulag en það sem við höfum í dag til að taka ákvarðanir um skipan mála á hálendinu. Í þessu felst ávinningur fyrir alla til langs tíma sem er mun verðmætari en þeir skammtímahagsmunirnir sem felast í því að litlir hópar nýti auðlindina á óskipulagðan og ósjálfbæran hátt með því sundurlausa stjórnfyrirkomulagi sem ríkir í dag. Orkufyrirtækin vilja meira Orkufyrirtæki ásælast það gríðarmikla afl sem býr á íslenska hálendinu. Sú raforka sem nú er framleidd á Íslandi kemur að langmestu leyti þaðan. Um 80% hennar fer síðan til stóriðju. En orkufyrirtækin vilja meira. Á sunnanverðu hálendinu hefur Landsvirkjun til dæmis ekki afskrifað hugmyndir um uppistöðulón við Þjórsárver, eina stærstu samfelldustu gróðurvin hálendsins. Í norðri eru upp hugmyndir um að virkja jökulárnar i Skagafirði og vatnasvið Skjálfandafljóts og á hálendinu miðju eru virkjanakostirnir Skrokkalda og Hagavatnsvirkjun. Ógnin af virkjunaráformum og eyðingu náttúruperla sem óhjákvæmilega fygir er því mjög raunveruleg og yfirvofandi á hálendinu. Þjóðgarður er besta vörnin gegn frekari ásælni í virkjanir á hálendinu. Ósjálfbær landnýting Gróður og jarðvegur á hálendinu er mjög viðkvæmur. Víða er enn beitt á illa farið land eins og niðurstöður úr Grólind hafa sýnt, nánar tiltekið landflæmi sem nemur fjórðungi Íslands. Markmið þjóðgarðs er m.a. sjálfbær landnýting sem þýðir að útrýma þarf ofbeit. Við megum ekki við því að tapa meiri gróðri eða jarðvegi vegna ósjálfbærrar landnýtingar. Þjóðgarður er vettvangur til að taka ofbeit og gróður- og jarðvegsvernd föstum tökum. Ágangur ferðamanna og öryggi þeirra Árið 2019 komu til Íslands 2 milljónir ferðamanna. 80% þeirra komu til Íslands fyrst og fremst til þess að njóta íslenskrar náttúru. Það gera 1,6 milljón á ári en líklegast mun ásóknin frekar aukast en minnka eftir Covid þegar fólk hefur fengið skilning á mikilvægi náttúrunnar og tengslum okkar við hana. Hálendið er bæði viðkvæmt og hættulegt heim að sækja. Tryggja verður dreifingu og öryggi ferðafólks á hálendinu þannig að hvorki náttúru- og menningarminjar né ferðafólkið sjálft hljóti skaða af. Sú umgjörð og þjónusta sem Hálendisþjóðgarður getur veitt yrði besta leiðin til þess að bjóða gestum okkar einstaka upplifun af hálendinu án þess að valda skaða á auðlindinni. Hálendið klofið með uppbyggðum vegum og raflínum? Víðerni eru óendanlega verðmæt í sjálfu sér, enda orðin sjaldgæf. Þau eru sérkenni hálendisins og eru ein og sér „stórkostleg og umbreytandi upplifun“ eins og heimspekingurinn góði Páll Skúlasonar skrifaði í tímamótarit sitt Hugleiðingar við Öskju. Að óbyggðum víðernum er sótt, m.a. með áformum um virkjanir, uppbyggða vegi og lagningu háspennulína. Stofnun þjóðgarðs mun styrkja viðstöðuna gegn þessari þróun. Útivist, ekki aðeins fyrir útvalda Markmið þjóðgarðs er að auka aðgengi allra að þeim djásnum sem hann hefur að geyma án þess þó að valda skaða á náttúru- og menningarminjum eða spilla möguleiknum til að upplifa öræfakyrrð og friðsæld. Útivist eflist og nær til breiðari hóps í Hálendisþjóðgarði þar sem fleiri geta notið - en um leið er dregið úr hættu á varanlegum spjöllum á viðkvæmri náttúru. Aukin fjölbreytni starfa á landsbyggðinni Sem betur fer eru margir staðir á landsbyggðinni í sókn og fólki fjölgar. Á öðrum stöðum fækkar íbúum og brýnt er að bregðast við. Mikilvægt er að sjá til þess að fjölbreyttar stoðir séu undir atvinnulífi um allt land. Þjóðgarður stuðlar að jákvæðri byggðaþróun og atvinnuuppbyggingu sem byggir á sérstöðu viðkomandi svæðis og er því líklegri til þess að standa styrkur þrátt fyrir utanaðkomandi breytingar eins og verðfall á hrávörumörkuðum. Hér eru bara nefnd nokkur dæmi þar sem þjóðgarður stuðlar að jákvæðri þróun, vernd og uppbyggingu. Nú er tímabært að hætta þrasa og þrefa. Allir sem komnir eru til vits og ára vita að það er lífsins ómögulegt að uppfylla allar óskir. Nú er tímabært að bræða saman þau mörgu ólíku sjónarmið sem fram hafa komið og það verkefni er nú á borði Alþingis. Þingmenn verða að hafa í huga að hún afskaplega raunveruleg, hættan af því að ýmsar ógnir rýri gæði hálendisins á óafturkræfan hátt. Þjóðgarður tekur utan um hálendið sem heild, verndar náttúru- og menningarminjar um leið og hann eykur aðgengi, bætir atvinnumöguleika og tryggir viðhald auðlindarinnar til framtíðar. Tíminn er núna, hálendið getur ekki beðið lengur. Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Auður Önnu Magnúsdóttir Umhverfismál Hálendisþjóðgarður Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar