Erlent

Húsleit gerð hjá fyrrum starfs­manni sem sakaði ráðu­neytið um að falsa veiru­tölur

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Jones kom að gerð gagnagrunns um faraldur kórónuveirunnar í Flórída.
Jones kom að gerð gagnagrunns um faraldur kórónuveirunnar í Flórída. Paul Hennessy/SOPA Images/LightRocket via Getty

Lögreglan í Flórídaríki í Bandaríkjunum gerði í dag húsleit hjá tölfræðingnum Rebekuh Jones, en hún kom að gerð gagnagrunns sem heldur utan um framgang kórónuveirufaraldursins í ríkinu. 

Í frétt breska ríkisútvarpsins af málinu er haft eftir lögregluyfirvöldum í Flórída að húsleitin hafi verið gerð vegna gruns um að brotist hafi verið inn í kerfi sem ríkið notar til að senda út neyðartilkynningar vegna hættuástands. Jones hefur hafnað því að vera viðriðin innbrotið. Tölvur í eigu Jones voru gerðar upptækar við húsleitina.

Jones var rekin frá heilbrigðisráðuneytinu í maí síðastliðnum eftir að hafa sakað ráðuneytið um að falsa tölfræði um kórónuveirusmit, með það fyrir augum að geta slakað á sóttvarnatakmörkunum. Eftir það kom hún á fót sínum eigin gagnagrunni þar sem hún fylgdist með framgangi faraldursins í Bandaríkjunum.

Samkvæmt Tampa Bay Times fól innbrotið í sér að skilaboð voru send á viðbragðsaðila í neyðarteymi ráðuneytisins og þeir hvattir til að „láta í sér heyra“ áður en þúsundir í viðbót myndu látast af völdum kórónuveirunnar. Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega 291.000 manns látist af völdum veirunnar í Bandaríkjunum, af þeim rúmlega 15.400.000 sem greinst hafa.

Segir lögregluna hafa miðað byssu á börnin

Samkvæmt löggæsluyfirvöldum í Flórída var innbrotið rakið og talið sýnt fram á að það hefði verið framið frá heimili Jones. Þá hafnaði lögreglan því að hafa beint byssu að börnum hennar, líkt og hún hafði sakað lögregluna um.

Söfnun hefur nú verið komið á fót til þess að styrkja Jones um lögfræðikostnað sem kann að falla til vegna málsins. Á undir tíu klukkutímum hafa safnast yfir 65.000 dollarar, eða rúmlega átta milljónir króna.

„Það lítur út fyrir að ég þurfi að fá mér nýja tölvu og góðan lögfræðing,“ er haft eftir Jones á síðu söfnunarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×