Fara í skimun til að geta djammað um helgina Hólmfríður Gísladóttir skrifar 17. nóvember 2020 22:45 Skimað í Los Angeles. epa/Kyle Grillot
Það er ekki góð hugmynd að fara í Covid-19 skimun á fimmtudegi og halda að það sé í lagi að djamma um helgina ef niðurstaðan er neikvæð. Þetta segir Barbara Ferrer, yfirlæknir Los Angeles-sýslu. Nokkuð ber á því að fólk, sérstaklega ungt fólk, sækist eftir að komast í skimun fyrir helgi og haldi svo að það sé í lagi að hitta hópa; fjölskydu og vini, um helgina án þess að bera grímu. „Niðurstöðurnar sem þú fékkst á laugardagsmorgni eru frá fimmtudeginum þegar þú fórst í skimun og þær segja: Á fimmtudag varstu neikvæður,“ segir Ferrer. „Þær segja ekkert um það hvort þú ert ennþá neikvæður á laugardeginum.“ Ferrer varaði fólk við því að finna til falskrar öryggiskenndar á grundvelli neikvæðra niðurstaða Covid-19 skimunar. Fyrrnefnd hegðun væri hættuleg og gæti leitt til frekari útbreiðslu hins banvæna sjúkdóms. Að minnsta kosti 7.629 hafa látið lífið úr Covid-19 í Los Angeles-sýslu og greindum fjölgar sífellt, sérstaklega meðal ungs fólks. Washington Post sagði frá.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bandaríkin Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Handteknir eftir líkamsárás Innlent Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Erlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Fleiri fréttir Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Fulltrúar Trump á fund Pútíns og svo Selenskís Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Ítrekar kröfu á Falklandseyjar: Ekki duttlungar heldur „lífsnauðsyn“ Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Árás á höfuðstöðvar Öryggisstofnunar Úkraínu Kviðdómendur fá enn eitt tækifæri Ákærður fyrir að brjóta á börnum Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Grænlendingar fá fría læknisþjónustu í Danmörku Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Óttast að yfir áttatíu hafi farist Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Sjá meira