Átta milljónir minka á skilgreindum áhættusvæðum þegar verið aflífaðir Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 15. nóvember 2020 21:23 Um átta milljónum af þeim ríflega tíu milljónum minka, á skilgreindum áhættusvæðum eitt og tvö í Danmörku, sem til stendur að aflífa vegna nýs afbrigðis kórónuveiru hafa þegar verið teknir af lífi. EPA/Mads Claus Rasmussen
Um átta milljónum af þeim ríflega tíu milljónum minka, á skilgreindum áhættusvæðum eitt og tvö í Danmörku, sem til stendur að aflífa vegna nýs afbrigðis kórónuveiru hafa þegar verið teknir af lífi. Þetta hefur danska ríkisútvarpið, DR eftir upplýsingum frá dönsku Dýra- og matvælastofnuninni. Stökkbreytt afbrigði kórónuveiru kom upp á minkabúum á Jótlandi fyrr í þessum mánuði og ákváðu dönsk stjórnvöld að allir minkar í Danmörku, um sautján milljónir talsins, skyldu aflífaðir til að koma í veg fyrir útbreiðslu veirunnar. Fyrrnefndar tölur yfir fjölda þeirra minka sem þegar hafa verið aflífaðir ná yfir minkabú sem heyra undir svæði sem skilgreind eru sem áhættusvæði eitt og áhættusvæði tvö. Svæði eitt nær yfir minkabú þar sem fundist hefur kórónuveirusmit eða þar sem grunur er um smit. Svæði tvö nær yfir bú þar sem ekki er grunur um smit en sem eru staðsettir í innan við 7,8 kílómetra radíus frá minkabúum sem eru á svæði eitt. Svæði þrjú nær til minkabúa sem hvorki eru innan þeirra fjarlægðarmarka né heldur er grunur um að hafi komið upp smit. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hversu margir minkar hafa verið aflífaðir á svæði þrjú samkvæmt frétt DR. Milljónir minka hafa þegar verið teknir af lífi.EPA/Morten Stricker/Dagbladet
Danmörk Loðdýrarækt Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Dýr Dýraheilbrigði Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira