City afgreiddi Porto í síðari hálfleik og meistararnir niðurlægðu Atletico Anton Ingi Leifsson skrifar 21. október 2020 20:52 Foden og Fernan Torres fagna þriðja marki City í kvöld. Paul Ellis/PA Images Manchester City er komið með þrjú stig í Meistaradeild Evrópu þetta árið eftir 3-1 sigur á Porto á heimavelli en þeir ensku lentu undir í leiknum. Luis Diaz kom Porto yfir á 14. mínútu en einungis sex mínútum síðar jafnaði Sergio Aguero úr vítaspyrnu. Staðan var 1-1 er liðin gengu til búningsherbergja. Ilkay Guendogan skoraði annað markið úr aukaspyrnu á 65. mínútu og átta mínútum síðar skoraði Ferran Torres þriðja mark City. Lokatölur 3-1. 6 - Phil Foden has been directly involved in six goals in his last seven Champions League appearances (three goals & three assists) - this despite being a substitute in four of those games. Prodigal. pic.twitter.com/ZQURZ1tU2W— OptaJoe (@OptaJoe) October 21, 2020 Ögmundur Kristinsson var ekki í leikmannahópi Olympiakos sem gerði vann 1-0 sigur á Marseille í sama riðli en leikið var í Grikklandi. Sigurmarkið skoraði Ahmed Hassan Koka á 90. mínútu. Bayern Munchen rúllaði yfir Atletico Madrid, 4-0, en Bayern eru sem kunnugt er ríkjandi meistarar. Kingsley Coman og Leon Goretzka skoruðu tvö fyrstu mörkin í fyrri hálfleik. Corentin Tolisso skoraði þriðja markið á 66. mínútu og sex mínútum síðar skoraði Kingsley Coman fjórða mark leiksins. Lokatölur 4-0. 20 - This is the 20th time Bayern Munich have scored 4+ goals in a game under Hansi Flick; the most of any team in the top five European leagues since he took charge in November 2019. Force. pic.twitter.com/OcYrzhpN5Y— OptaJoe (@OptaJoe) October 21, 2020 Inter gerði jafntefli á heimavelli gegn Borussia Mönchengladbach, 2-2. Romelu Lukaku kom Inter yfir en Ramy Bensebaini jafnaði metin úr vítaspyrnu eftir klukkutímaleik. Þeir þýsku komust svo yfi með marki Jonas Hofmann sex mínútum fyrir leikslok en aftur skoraði Lukaku og jafnaði metin í 2-2. Lukaku to the rescue!He's scored his and Inter's second to level at 2-2 against Borussia Monchengladbach.#ucl live scores https://t.co/XHL9UClHlG #bbcfootball pic.twitter.com/Q8KJ00we9b— BBC Sport (@BBCSport) October 21, 2020 Atalanta heldur svo uppteknum hætti frá því á síðustu leiktíð en þeir unnu þægilegan 4-0 sigur á danska liðinu FC Midtjylland á útivelli. Duvan Zapata, Alejandro Gomez, Luis Muriel og Aleksey Miranchuk skoruðu mörkin en þrjú fyrstu komu í fyrri hálfleik. Mikael Anderson spilaði síðustu fimm mínúturnar hjá Midtjylland. Öll úrslit dagsins: A-riðill: Salzburg - Lokomotiv Moskva 2-2 Bayern Munchen - Atletico Madrid 4-0 B-riðill: Real Madrid - Shaktar Donetsk 2-3 Inter - Borussia Mönchengladbach 2-2C-riðill: Man. City - Porto 2-1 Olympiakos - Marseille 1-0D-riðill: Ajax - Liverpool 0-1 Midtjylland - Atlanta 0-4 Meistaradeild Evrópu