Styðjum fjölþjóðastefnuna og byggjum upp samfélag fyrir sameiginlega framtíð mannkyns Jin Zhijian skrifar 16. október 2020 09:00 Um þessar mundir æðir Kórónuveirufaraldurinn um heimsbyggðina, einangrunarhyggja og eineltismenning færist í aukana og alþjóðleg kerfi samvinnu búa við stöðugar árásir. Á þessum viðsjárverðu tímamótum í mannkynssögunni, ávarpaði forseti Kína, Xi Jinping 75. alsherjarþing Sameinuðu Þjóðanna þar sem hann áréttaði með ákveðnum hætti þann einlæga ásetning Kína að styðja við Sameinuðu þjóðirnar, standa vörð um fjölþjóðastefnuna, og vinna með öðrum ríkjum að þvi að byggja upp samfélag fyrir sameiginlega framtíð mannkyns. Til að styðja við fjölþjóðastefnuna, ættum við að koma upp hjá okkur þeirri sýn að við búum öll í sama samfélaginu, og eigum sameiginlega framtíð. Vírusinn leiðir í ljós misbrestina í veröldinni, og sýnir okkur fram á að allar þjóðir eru tengdar nánum böndum. Við ættum að fagna þeirri sýn að framtíð mannkyns sé fólgin í samfélagi þar sem allir eru tengdir saman. Við ættum að horfa á hvort annað sem fjölskyldumeðlimi og vinna saman að markmiðum sem koma öllum til góða. Nýleg könnun á vegum Sameinuðu þjóðanna leiddi í ljós að 87% þeirra sem tóku afstöðu, höfðu þá skoðun að COVID-19 hafi leitt í ljós að alþjóðleg samvinna yrði sífellt brýnni. Kína hefur verið í fylkingarbrjósti í baráttunni gegn allskyns vírusum, og hefur tekið fullan þátt í baráttunni við COVID-19. Kína hefur útvegað bráðnauðsynlegar hjúkrunarvörur til yfir 150 þjóðlanda og alþjóðastofnana og veitt Alþjóða Heilbrigðisstofnuninni (WHO) og áætlun Sameinuðu þjóðanna vegna COVID-19, fjárframlög upp á 50 milljón bandaríkjadala, hvoru um sig. Við munum halda áfram að styðja við lönd og landsvæði í baráttunni við vírusinn. Við munum staðfastlega standa við það loforð okkar, að kínversk bóluefni muni verða aðgengileg fyrir heimsbyggðina, taka virkan þátt í sameiginlegum rannsóknum á bóluefni, og leggja okkar af mörkum til að þróunarlöndin muni hafa óheftan aðgang að ódýru bóluefni. Til að styðja við fjölþjóðastefnuna, ættum við að standa vörð um það alþjóðlega kerfi þar sem Sameinuðu Þjóðirnar er grunnstoðin. Kína var fyrsta ríkið til að undirrita stofnskrá Sameinuðu Þjóðana. Kína er eitt af stofnríkjum Sameinuðu Þjóðana og var eina þróunarríkið til að eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðana. Kína mun halda áfram að fylgja fjölþjóðastefnunni, og mun áfram vera virkt í að standa vörð um, og móta og þróa sameiginlegt alþjóðlegt skipulag Sameinuðu Þjóðanna sem byggir á alþjóðalögum og mun staðfastlega viðurkenna Sameinuðu Þjóðirnar sem grunnstoð í alþjóðlegu samstarfi. Kína er mikilvægur samstarfsaðili í áætlun Sameinuðu Þjóðanna um sjálfbæra þróun fyrir árið 2030 og næststærsti fjárhagslegi stuðningsaðili og mikilvægur hlekkur í friðargæslu Sameinuðu Þjóðanna, og hefur undanfarin 30 ár sent meira en 40.000 friðargæsluliða. Kína hefur einnig tekið virkan og uppbyggilegan þátt í að ná pólitískri sátt og haft milligöngu um ýmis alþjóðleg hitamál. Á 75. allsherjarþingi Sameinuðu Þjóðanna tilkynnti Kína einnig nýjar frumkvæðisaðgerðir og átaksverkefnum t.d. 50 milljóna bandaríkjadala áætlun sem snýr að þriðja áfanga Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Kína og þróunarsamvinnustofnunar Sameinuðu Þjóðanna (suður-suður samstarfssjóðurinn), stofnun Alþjóðlegu upplýsinga- og nýsköpunarmiðstöðvar Sameinuðu Þjóðanna á sviði landfræðilegra upplýsinga og stórt alþjóðlegt gagnasafn sem safnar saman upplýsingum um sjálfbæra þróun. Til að styðja við fjölþjóðastefnuna, ættum við að standa vörð um það fjölþætta viðskiptakerfi sem byggir á Alþjóðaviðskiptastofnuninni. Alþjóðleg efnahagsvæðing er orðin að veruleika og er í takti við sögulega þróun. Við ættum að sækjast eftir opinni sameiginlegri þróun, og vera einbeitt í að byggja upp opnara efnahagskerfi. Við ættum að forðast einangrunar og verndunarhyggju og einbeita okkur að því að byggja upp stöðugt og hnökralaust framleiðslu og dreifingarkerfi. Kína gerir sér fulla grein fyrir mikilvægi gegnsæis og samvinnu í því starfi að ýta áfram umbótum og framþróun, með það að leiðarljósi að það komi öllum til góða. Kína hefur stytt lista sinn yfir takmarkanir varðandi erlenda fjárfesta og aukið þar með aðgengi, opnað framleiðsluiðnaðinn og bætt aðgengi að þjónustuiðnaði sínum. Kína hefur á síðustu tveimur árum orðið að því hagkerfi sem stendur sig einna best í að bæta viðskiptaumhverfi sitt. Kína mun halda áfram á þeirri braut að sækjast eftir opnara umhverfi, deila gæðum með umheiminum og aðstoða önnur lönd að rísa aftur upp á eigin forsendum. Til að styðja við fjölþjóðastefnuna, ættum við að takast á við vandamál á heimsvísu með samhæfingu og samvinnu. Parísarsamkoulagið varðandi loftslagsbreytingar markar leiðina fyrir veröldina að þróast að grænum lífstíl með lágmarks útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Öll lönd ættu að sækjast eftir framsækinni, samhæfðri, grænni og opinni framþróun og fyrir grænni endurheimt í efnahagslífi heimsins í kjölfar COVID-19 faraldursins. Kína mun standa við skuldbindingar sínar varðandi orkusparnað og samdrátt í útblæstri, með það að markmiði að gera jörðina okkar hreinni og fallegri. Kína mun auka við þá áætlun sína að draga úr útblæstri með framlögum á landsvísu til grænna verkefna, og stefnir á að útblástur CO2 nái hámarki fyrir 2030 og nái kolefnisjöfnun fyrir árið 2060. Þetta er áætlun sem Kína ákvað af eigin hvötum fyrir eigin framfarir í vistkerfi, þetta er einnig gríðarleg skuldbinding sem undirstrikar vilja Kína til að leggja sitt af mörkum fyrir framþróun mannkyns. Við munum yfirstíga allar hindranir sem við munum mæta og við munum taka djarfar ákvarðanir til að geta staðið við loforð okkar. Við munum ýta af stað “grænni byltingu” í bæði daglegum lífsstíl og framþróun og munum gera okkar ýtrasta til að vernda sameiginlegt heimili okkar. Fjölþjóðastefnan er grunnstoð þess alþjóðlega regluverks sem núna er í gangi. Sama hvernig hið alþjóðlega landslag mun þróast, mun Kína vera staðfast í að styðja við og framkvæma í anda fjölþjóðastefnunnar. Við munum taka stór skref í átt að því að auka stöðugleika og öryggi í þessari eldfimu veröld, og veita öryggi og styrk til stuðnings alþjóðasamfélaginu. Kína og Ísland eiga bæði mikla möguleika í alþjóðasamskiptum og til stuðnings frjálsum alþjóðaviðskiptum, geta staðið saman við að berjast gegn loftslagsbreytingum og fyrir sjálfbæra þróun og kynjajafnrétti. Við skulum taka höndum saman og virða þau gæði sem felast í friði, framþróun, jafnrétti, réttlæti, lýðræði og frelsi fyrir okkur öll, og byggja saman nýja gerð af alþjóðasamskiptum og samfélag fyrir sameiginlega framtíð mannkyns. Saman getum við gert heiminn að betri stað fyrir alla. Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kína Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Almannafé dælt til tæknirisanna í gegnum stjórnlaust bruðl í borginni Guðröður Atli Jónsson Skoðun Frístundastyrkur fyrir 67 ára og eldri! Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Reykjavíkurborg skilar auðu Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Skiptir máli hvort Jens Garðar sé á þingi? Svanborg Sigmarsdóttir Skoðun Húsfélagið Jens Garðar Helgason Skoðun Í minningu Jürgen Habermas, eins mesta hugsuðar samtímans Maximilian Conrad Skoðun Sterkari saman á óvissutímum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Ísland í skjóli grænnar orku Jón Gunnarsson Skoðun Leiðandi afl í nýrri atvinnustefnu Íslands Einar Bárðarson Skoðun Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Skiptir máli hvort Jens Garðar sé á þingi? Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Leiðandi afl í nýrri atvinnustefnu Íslands Einar Bárðarson skrifar Skoðun Almannafé dælt til tæknirisanna í gegnum stjórnlaust bruðl í borginni Guðröður Atli Jónsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg skilar auðu Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Saman byggjum við von Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Í minningu Jürgen Habermas, eins mesta hugsuðar samtímans Maximilian Conrad skrifar Skoðun Húsfélagið Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Sterkari saman á óvissutímum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Ábyrgð á brunavörnum í atvinnuhúsnæði Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Að vita meira í dag en í gær Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Mannúðlegt, skynsamlegt og betri meðferð á fjármunum ríkisins skrifar Skoðun Hvað með heilaheilsu? Kolfinna Þórisdóttir skrifar Skoðun Frístundastyrkur fyrir 67 ára og eldri! Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Ísland í skjóli grænnar orku Jón Gunnarsson skrifar Skoðun Tilfinningar sem okkar hærri leiðbeinendur Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Bítlakynslóðin úti í kuldanum á efri árum Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ákall til ráðherra menningarmála og borgarstjóra Reykjavíkur Frédéric Boyer skrifar Skoðun Þegar refsing einstaklings, verður refsing fyrir alla fjölskylduna Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir,Harpa Halldórsdóttir,Jenný Magnúsdóttir skrifar Skoðun Tannheilsa má ekki gleymast Fríða Bogadóttir skrifar Skoðun Fyrningarreglur námslána og lagaskil nýrra laga Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Loksins fá sjónarmið Afstöðu hljómgrunn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Ungt fólk kemst ekki inn á húsnæðismarkaðinn Böðvar Ingi Guðbjartsson skrifar Skoðun Við erum í þessu saman Heiða Björg Hilmisdóttir skrifar Skoðun Menningin á heima í Kórnum Svava H. Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Landakort samtímans og áttaviti sögunnar Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þétting byggðar og miðsókn – skipulagsstefna sem þjónar ekki öllum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Smalaholtskógur: Náttúruperla eða fórnarkostur skipulags, og hver á að borga? Ómar Þór Kristinsson skrifar Skoðun Í stríði við náttúruna - baráttan um landið Ólafur Valsson skrifar Skoðun Íbúar njóti árangursins Bragi Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Almannafé dælt til tæknirisanna í gegnum stjórnlaust bruðl í borginni Guðröður Atli Jónsson skrifar
Skoðun Þörf á tafarlausum framkvæmdum í samgöngumálum Hafnfirðinga Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þegar refsing einstaklings, verður refsing fyrir alla fjölskylduna Guðrún Snæbjört Þóroddsdóttir,Harpa Halldórsdóttir,Jenný Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Smalaholtskógur: Náttúruperla eða fórnarkostur skipulags, og hver á að borga? Ómar Þór Kristinsson skrifar