Sigvaldi átti góðan leik í sigri Kielce Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. október 2020 18:31 Sigvaldi Björn átti góðan leik fyrir Kielce í kvöld. HSÍ
Sigvaldi Björn Guðjónsson átti góðan leik í liði Vive Kielce er liðið lagði Meshkov Brest í Meistaradeild Evrópu í handbolta í kvöld. Þá vann Álaborg frábæran útisigur á Nantes. Sigvaldi Björn var meðal markahæstu manna í liði Vive Kielce í kvöld er liðið lagði Meshkov Brest af velli með sjö marka mun, 34-27. Sigvaldi var einkar drjúgur í upphafi leiks, skoraði hann fyrsta mark Kielce í kvöld og alls þrjú af fyrstu tíu mörkum liðsins. Hann endaði með fjögur mörk. Sigurinn var aldrei í hættu en Kielce leiddi með sjö mörkum í hálfleik, 18-11 og hleypti gestunum aldrei almennilega inn í leikinn. Kielce er sem fyrr í 2. sæti A-riðils Meistaradeildar Evrópu með sex stig að loknum fjórum leikjum. Fyrir leik kvöldsins voru Kielce og Meshkov Brest jöfn að stigum. Flensburg er sem fyrr á toppi riðilsins með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Í B-riðli heldur frábært gengi Álaborgar áfram en liðið er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir umferðir eftir öruggan sigur á Nantes frá Frakklandi í kvöld. Lokatölur 32-24 og sigurinn í raun aldrei í hættu. Gestirnir frá Frakklandi skoruðu aðeins níu mörk í fyrri hálfleik, staðan 16-9 þegar flautað var til hálfleiks. Yfirburðir Álaborgar héldu áfram í síðari hálfleik og vann liðið á endanum öruggan átta marka sigur, 32-24. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Álaborgar.
Handbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira