Innlent

Á­bending um elds­voðann í hús­bílnum barst ekki lög­reglu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins. Vísir/Vilhelm

Ábending sem Neyðarlínunni barst um eld í húsbíl við Torfastaði í Grafningi í Árnessýslu laust fyrir miðnætti á föstudagskvöld skilaði sér ekki til lögreglunnar.

Önnur tilkynning barst hins vegar lögreglu daginn eftir, um klukkan hálftvö á laugardag, en þá var bíllinn mikið brunninn og illa útleikinn. Rannsókn leiddi í ljós að líkamsleifar karlmanns á fertugsaldri voru í bílnum.

Greint er frá málinu á forsíðu Morgunblaðsins í dag. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, staðfestir við blaðið að ábendingin hafi ekki ratað inn á borð lögreglu á föstudagskvöld. Skoðað verði hvernig standi á því.

Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að það hafi verið sumarhúsaeigendur í Grafningi sem hringdu á Neyðarlínuna á föstudagskvöld þar sem þeir töldu sig sjá eld hinu megin Sogsins. Starfsmaður Neyðarlínunnar hafi vísað þeim áfram á lögregluna en þar hafi hringt út.

Rannsókn lögreglu á eldsvoðanum stendur yfir en í frétt Morgunblaðsins segir að lögreglan verjist á meðan allra frétta af málinu. Þannig fáist til að mynda ekki upplýsingar um hvort grunur leiki á a kveikt hafi verið í bílnum eða hvenær talið er að eldurinn hafi kviknað.

Í tilkynningu lögreglu vegna eldsvoðans bað lögreglan á Suðurlandi alla þá sem telja sig hafa orðið vara við eld eða reyk á þessum slóðum aðfaranótt laugardags og fram eftir laugardegi eða búa yfir upplýsingum sem þeir telja að kunni að skipta máli við rannsóknina að hafa samband í síma 444-2000, á facebook eða með tölvupósti á sudurland@logreglan.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×