Oyarzabal hetja Spánverja gegn Sviss

Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. vísir/Getty

Spánverjar fengu Sviss í heimsókn í A-deild Þjóðadeildarinnar í Madrid í kvöld en leikið var á varaliðsvelli Real Madrid fyrir framan enga áhorfendur.

Heimamenn voru mun sterkari aðilinn stærstan hluta leiksins en aðeins var eitt mark skorað í leiknum.

Það kom á 14.mínútu þegar Mikel Oyarzabal batt enda á snarpa sókn í kjölfar skelfilegra mistaka Yann Sommer og Granit Xhaka í uppspili frá markinu sínu. 

Svisslendingar áfram með eitt stig á botni riðils 4 en Spánverjar tróna á toppnum með 7 stig.

Í sama riðli gerðu Þjóðverjar góða ferð til Úkraínu og unnu 1-2 sigur með mörkum Matthias Ginter og Leon Goretzka.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira