Gylfi jafnaði markamet Eiðs Smára í leikjum sem skipta máli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. október 2020 10:10 Gylfi Þór Sigurðsson fagnar fyrra marki sínu í leiknum á móti Rúmeníu í gær. Vísir/Vilhelm Gylfi Þór Sigurðsson er nú sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk fyrir íslenska landsliðið í keppnisleikjum. Eftir mörkin tvö gegn Rúmenum í gær þá deilir hann efsta sætinu með Eiði Smára Guðjohnsen. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði í gær mark númer 20 og 21 í leikjum sem skipta máli. Þar er átt við leiki Íslands í keppnum eins og HM, EM eða Þjóðadeildinni. Með því komst hann upp að hlið Eiðs Smára Guðjohnen í efsta sæti listans. Kolbeinn Sigþórsson er síðan í þriðja sætinu með 13 mörk. Kolbeinn á markametið með Eiði Smára en báðir hafa þeir skorað 26 mörk í öllum leikjum fyrir landsliðið. Gylfi er nú tveimur mörkum á eftir þeim. Gylfi er aftur á móti búinn að skorað 21 af 24 mörkum sínum fyrir íslenska landsliðið í keppnisleikjum eða 88 prósent marka sinna. Gylfi er búinn að skora 12 mörk í leikjum í Evrópukeppni og 9 mörk í leikjum í heimsmeistarakeppni. Eiður Smári skoraði 10 mörk í leikjum í Evrópukeppni og 11 mörk í leikjum í heimsmeistarakeppni. Flest mörk í keppnisleikjum með íslenska landsliðinu: 21 mark - Gylfi Þór Sigurðsson (58 leikir) 21 mark - Eiður Smári Guðjohnsen (64 leikir) 13 mörk - Kolbeinn Sigþórsson (37 leikir) 11 mörk - Birkir Bjarnason (61 leikur) 8 mörk - Ríkharður Daðason (26 leikir) 7 mörk - Alfreð Finnbogason (39 leikir) Hér fyrir neðan má sjá mörkin hans Gylfa frá því í leiknum í gær. EM 2020 í fótbolta Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira
Gylfi Þór Sigurðsson er nú sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk fyrir íslenska landsliðið í keppnisleikjum. Eftir mörkin tvö gegn Rúmenum í gær þá deilir hann efsta sætinu með Eiði Smára Guðjohnsen. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði í gær mark númer 20 og 21 í leikjum sem skipta máli. Þar er átt við leiki Íslands í keppnum eins og HM, EM eða Þjóðadeildinni. Með því komst hann upp að hlið Eiðs Smára Guðjohnen í efsta sæti listans. Kolbeinn Sigþórsson er síðan í þriðja sætinu með 13 mörk. Kolbeinn á markametið með Eiði Smára en báðir hafa þeir skorað 26 mörk í öllum leikjum fyrir landsliðið. Gylfi er nú tveimur mörkum á eftir þeim. Gylfi er aftur á móti búinn að skorað 21 af 24 mörkum sínum fyrir íslenska landsliðið í keppnisleikjum eða 88 prósent marka sinna. Gylfi er búinn að skora 12 mörk í leikjum í Evrópukeppni og 9 mörk í leikjum í heimsmeistarakeppni. Eiður Smári skoraði 10 mörk í leikjum í Evrópukeppni og 11 mörk í leikjum í heimsmeistarakeppni. Flest mörk í keppnisleikjum með íslenska landsliðinu: 21 mark - Gylfi Þór Sigurðsson (58 leikir) 21 mark - Eiður Smári Guðjohnsen (64 leikir) 13 mörk - Kolbeinn Sigþórsson (37 leikir) 11 mörk - Birkir Bjarnason (61 leikur) 8 mörk - Ríkharður Daðason (26 leikir) 7 mörk - Alfreð Finnbogason (39 leikir) Hér fyrir neðan má sjá mörkin hans Gylfa frá því í leiknum í gær.
Flest mörk í keppnisleikjum með íslenska landsliðinu: 21 mark - Gylfi Þór Sigurðsson (58 leikir) 21 mark - Eiður Smári Guðjohnsen (64 leikir) 13 mörk - Kolbeinn Sigþórsson (37 leikir) 11 mörk - Birkir Bjarnason (61 leikur) 8 mörk - Ríkharður Daðason (26 leikir) 7 mörk - Alfreð Finnbogason (39 leikir)
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Enski boltinn Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Útsalah á mörkum í Lundúnum Enski boltinn Dagskráin í dag: Það er pílan Sport Fleiri fréttir Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Messi með eigin treyjur upp um alla veggi á heimilinu Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Sjá meira