Allvíða rigning norðan og austanlands Atli Ísleifsson skrifar 8. október 2020 07:20 Við Mývatn. Vísir/Vilhelm
Norðlæg átt verður ríkjandi víðast hvar á landinu í dag. Bjartviðri verður suðaustanlands en skýjað um landið vestanvert og allvíða rigning norðan og austanlands. Hitinn verður á bilinu tvö til átta stig yfir daginn. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að á föstudag og laugardag sé útlit fyrir hæglætis veður víðast hvar á landinu, og einnig framan af degi á sunnudag. Á sunnudagskvöld gangi hins vegar í ákveðna suðaustanátt með rigningu sunnan og vestanlands og hlýnandi veðri. Spákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 14, eins og það leit út í morgun.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Norðan 5-10 m/s og víða bjartviðri, en norðvestan 10-15 m/s og lítilsháttar rigning eða slydda um landið norðaustanvert. Hiti 2 til 10 stig, mildast suðaustanlands. Dregur úr vindi og kólnar heldur um kvöldið. Á laugardag: Hæg breytileg átt, víða bjart og fremur svalt veður, en vaxandi suðaustanátt, þykknar upp, hlýnar og fer að rigna vestantil um kvöldið. Á sunnudag: Ákveðin suðaustanátt en hægari breytileg átt norðanlands. Rigning í flestum landshlutum. Snýst í suðvestanátt með skúrum síðdegis, fyrst vestantil. Hiti 5 til 8 stig yfir daginn. Á mánudag: Vestlæg átt og skýjað en dálítil rigning austantil í fyrstu. Hiti 4 til 8 stig. Á þriðjudag: Útlit fyrir vaxandi sunnanátt með rigningu og heldur hlýnandi veðri. Á miðvikudag: Áframhaldandi suðlæg átt og rigning á sunnanverðu landinu en úrkomulítið norðantil. Hiti 5 til 10 stig.
Veður Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Innlent „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fleiri fréttir Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Sjá meira