Innlent

SA telur forsendur kjarasamninga brostnar en ASÍ á öndverðum meiði

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Drífa Snædal, forseti ASÍ, í Karphúsinu þegar kjarasamningar voru undirritaðir.
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, og Drífa Snædal, forseti ASÍ, í Karphúsinu þegar kjarasamningar voru undirritaðir. vísir/vilhelm

Líkur hafa aukist á að lífskjarasamningunum verði sagt upp eftir að forsendunefnd aðila vinnumarkaðarins klofnaði í afstöðu sinni.

Samtök atvinnulífsins telja forsendur kjarasamninga vera brostnar. Þetta kemur fram í færslu á vef SA.

„Samtökum atvinnulífsins er heimilt að segja kjarasamningum upp um komandi mánaðamót komi verkalýðshreyfingin ekki til móts við atvinnulífið og aðlagi kjarasamninga að gjörbreyttri stöðu efnahagsmála.“

Í dag fundaði forsendunefnd um hvort forsendur samninganna stæðust en nefndin þarf að komast að niðurstöðu fyrir mánaðamót.

Nú síðdegis sendi Alþýðusamband Íslands frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að sambandið telji forsendur hafa staðist. Lífskjarasamningarnir hvíli á þremur forsendum sem allar hafi staðist í megindráttum.

Í fyrsta lagi bendir ASÍ á kaupmátt launa sem hafi aukist um 4,8% það sem af er samningstíma, í öðru lagi á lækkun stýrivaxta en þeir hafa lækkað úr 4,5% í 1% það sem af er samningstíma og að lokum er bent á tímasett loforð stjórnvalda sem hafi staðist fyrir utan ákvæði um bann við 40 ára verðtryggðum lánum.

Þau rök sem Samtök atvinnulífsins hafa sett fram eru meðal annars að nú sé gert ráð fyrir að landsframleiðslan verði 300 milljörðum króna lægri á árinu 2021 en gert var ráð fyrir við undirritun samninga.

Samtökin segja augljóst að engar forsendur séu fyrir hækkun launakostnaðar í atvinnulífinu.

SA vill fresta launahækkunum og lengja kjarasamninga. Þannig verði hægt að fresta öllum dagsetningum samninganna sem nemur lengingunni. Árið sé farið forgörðum og að atvinnulífið og launafólk þurfi að bíða storminn af sér í sameiningu. Sú nálgun rími vel við aðrar aðgerðir sem gripið hafi verið til vegna faraldursins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×