57 greindust innanlands Atli Ísleifsson skrifar 23. september 2020 10:59 Vísir/vilhelm
57 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Rétt rúmlega helmingur, eða 29 manns, voru ekki í sóttkví við greiningu. Aldrei hafa verið tekin fleiri sýni á einum degi. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á vefnum covid.is, en alls hafa þá 263 greinst innanlands síðustu átta sólarhringa. Tveir eru á sjúkrahúsi vegna Covid-19 líkt og í gær. Þrjú smit greindust á landamærum og þar sem niðurstöðu mótefnamælingar er beðið í tilfellum tveggja. Einn mældist með mótefni. 324 manns eru nú í einangrun, samanborið við 281 í gær. Þá fjölgar þeim sem eru í sóttkví, eru 2.410 í dag en voru 2.283 í gær. Af þeim 57 sem greindust innanlands var um 54 einkennasýni að ræða, tvö við sóttkvíar- og handahófsskimun og eitt við skimun hjá ÍE. Nýgengi innanlandssmita, þ.e. fjöldi smitaðra á hverja 100 þúsund íbúa undanfarnar tvær vikur er nú 83,2 en var 68,4 í gær. Þá er nýgengi landamærasmita nú 4,4, en var 4,9 í gær. Nú hafa 2.476 manns greinst smitaðir af kórónuveiru frá upphafi faraldursins. Tíu þeirra sem hafa veikst af Covid-19 eru látnir. Alls voru tekin 2798 einkennasýni hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og Íslenskri erfðagreiningu í gær og 640 sýni á landamærunum eða í seinni landamæraskimun. Þá voru 1291 sýni tekin í annarri skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu og 436 sýni tekin við sóttkvíar- og handahófsskimun. Aldrei áður hafa verið tekin fleiri sýni.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira