Fíkniefni fundust í sumarbústað sem leigjendur unnu skemmdarverk á Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 14. september 2020 22:12 Rúður voru brotnar í sumarbústaðnum og búið að rífa niður gardínur. Aðsend
Fjórir ungir menn, sem tóku sumarbústað við Kirkjufell á Snæfellsnesi á leigu og talið er að hafi unnið mikil skemmdarverk á bústaðnum, virðast hafa haft fíkniefni við hönd á meðan dvöl þeirra stóð. Eigendur bústaðarins fundu box með marijúana og umbúðir utan af sterkari fíkniefnum í bústaðnum eftir að mennirnir höfðu haldið heim á leið. Hjörtur Guðmundsson, eigandi sumarbústaðarins, greindi frá skemmdarverkunum á Facebook-síðunni Landið mitt Ísland í gær og birti hann þar einnig myndir af ástandinu sem blasti við honum þegar hann bar að garði í gær. Af myndunum að dæma voru mikil læti á svæðinu en tvær rúður voru brotnar, tæki horfin og fleira. Rúður í traktornum voru brotnar.Aðsend Mennirnir höfðu, auk þess að hafa brotið og bramlað í bústaðnum sem þeir tóku á leigu, farið inn í annan bústað og stolið þaðan sjónvarpi og útvarpi, farið inn í nærliggjandi vélageymslu sem er í eigu móður Hjartar og brutu þar rúður í dráttarvél, brutust inn í gám og rótuðu þar duglega til að sögn Hjartar. Þeir höfðu einnig tæmt úr duftslökkvitæki inni í bústaðnum eins og greina má á myndunum. „Það var allt brotið og bramlað, duft út um allt úr duftslökkvitæki. Það er það alversta sem hægt er að fá, hefðu þeir bara sleppt þessu væri þetta miklu minna mál,“ segir Hjörtur í samtali við fréttastofu. Ætlar að kæra málið til lögreglu Hann segir tjónið nema á um 700 þúsund krónum og gerir hann ekki ráð fyrir að fá tjónið bætt. Hjörtur ætlar þó að krefjast skaðabóta vegna málsins og hefur hann fengið vilyrði frá umsjónarmanni bókunarsíðunnar íslensku sem hann notaði um að fá hjálp við það. „Þetta er sett inn í þetta kerfi, þeir eru kallaðir til skýrslutöku og svo gerist ekki neitt. Það er ekkert út úr þessum strákum að hafa. Bara ekki neitt.“ Sjónvarpið í bústaðnum var brotið eftir helgina.Aðsend Hann telur einhvern í hópnum hafa verið edrú sem farið hafi upp í hinn bústaðinn og haft þaðan af brott sjónvarp og útvarpstæki. „Einhver í hópnum var edrú og hefur farið upp í efra húsið, það var ein hurð opin þar. Hann hefur snyrtilega tekið tækin úr sambandi, bluetooth-útvarp og sjónvarp. Það var ekkert að sjá þar nema að einhver hafi tekið þetta snyrtilega úr sambandi og bara tekið þetta, og fjarstýringarnar líka.“ Hann segir ólíklegt að mennirnir fái nokkurn pening fyrir það sem þeir stálu, það sé varla að virði hlutanna jafngildi kostnaðnum við að leigja bústaðinn. Það sé því ljóst að mennirnir hafi rænt hlutunum bara til að valda usla. Óttast að svona umgengni verði „trend“ meðal ungs fólks Mennirnir skildu eftir sig bæði flöskur, fatnað og úr en þeir skildu einnig eftir sig box af marijúana og umbúðir sem í höfðu verið sterkari fíkniefni. „Drukkið fólk gerir ekki svona. Það þarf kraft í að brjóta svona rúðu, hvað þá tvær brotnar rúður,“ segir Hjörtur. Mennirnir sem tóku bústaðinn á leigu voru fjórir talsins en Hjörtur segist hafa séð á samfélagsmiðlinum Snapchat klippu að tvær stúlkur hafi bæst í hópinn. Hann hafi ekki vitað af þeim fyrir fram. Hann segist hafa búist við partýstandi en aldrei svo hræðilegri aðkomu. Föt, flöskur og annað rusl var skilið eftir.Aðsend „Það eru klippur úr þessu partýi út um allt á Snapchat og þetta gæti orðið bara eitthvað trend hjá ungu fólki að fara í bústað og stúta honum,“ segir Hjörtur. „Það er bara ekkert í lagi að umgangast annarra manna eigur svona.“ Hann segir það ekki algengt að fólk skilji við bústaðinn í svona ástandi. Það hafi gerst einu sinni áður, árið 2013, þegar hópur af nýstúdentum hafi tekið bústaðinn á leigu til að fagna útskrift. Þá, segir Hjörtur, var stjórnlaust partý en engar skemmdir voru á húsinu. Eftir það hafi hann hins vegar sett á tuttugu ára aldurstakmark. Búið var að róta í geymslugámi sem er við bústaðinn.Aðsend Stöku sinnum hafi það komið fyrir að bústaðurinn sé skilinn eftir óhreinn, kannski eitthvað af flöskum, en aldrei eins og nú um helgina. „Ég tók þessa bókun því ég er heima hvort eð er og það er ekkert mál að þrífa eftir svona partý, það tekur mig hálftíma lengur en venjuleg þrif ef það er ekkert skemmt svona svakalega. Nú verð ég að taka fyrir þetta, setja 25 ára aldurstakmark,“ segir Hjörtur. „Við erum að hugsa um að loka bara og bíða eftir útlendingunum.“ Varar aðra við og hvetur fólk til að skoða mögulega leigjendur Hann segist aldrei hafa þurft að skoða leigjendur áður en þeir hafa komið. Hann hvetur nú aðra sem leigja út sumarbústaði sína til að gera það og setja aldurstakmark á leigjendur. „Alltaf þegar kemur bókun segi ég bara já, ég hef ekkert verið að velta því fyrir mér, ég hef ekkert verið að tékka á fólkinu neitt sérstaklega og ég var með ungt fólk fyrr í sumar sem var alveg frábært, þau voru á sama aldri,“ segir Hjörtur. Eins og sjá má var tæmt úr duftslökkvitæki í einu herbergjanna. Duftið þekur gólf bústaðarins.Aðsend Mennirnir bókuðu bústaðinn 1. september og segir Hjörtur ljóst að ekki hafi verið um skyndiákvörðun að ræða. Skemmdarverkin hafi verið úthugsuð. „Það býr eitthvað að baki, þetta er eitthvað skipulagt.“ „Íslendingar sem eru að leigja út svona bústaði þurfa að tékka á fólki og setja aldurstakmark á eins og var gert við tjaldstæðin. Það þarf að gera það eða fá tryggingu. En við erum ekkert að eltast við það, ef það er fjölskylda að leigja eina helgi, við erum ekkert að fara að heimta tryggingu,“ segir Hjörtur.
Grundarfjörður Lögreglumál Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Innlent „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Innlent Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Innlent Fleiri fréttir Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Hæstiréttur staðfestir dóm yfir móður sem myrti son sinn Lýsa ófremdarástandi og krefjast aðgerða strax Vinna að því að fækka sjúklingum og flytja annað Mikilvægi Íslands eykst með nýrri aðgerð NATO á norðurslóðum Starfsmaður smitaður af berklum: „Þetta var alveg frekar mikið sjokk“ Fjöldi síma kom á óvart Neyðaróp starfsmanna og leynisímar Réðust í húsleit í leit að þýfi Gripinn með þýfi í fórum sínum og sparkað úr landi Kynnir drög að aðgerðaáætlun til að bregðast við offitu Íslendinga Ársæll í veikindaleyfi: „Mjög skrýtið að fá sleggju ríkisstjórnar í andlitið“ Ákærður fyrir líkamsárás en lýsir yfir sakleysi Ólína fyllir í skarð Margrétar á Bifröst „Sátt og samlyndi“ um skyndileg starfslok varaslökkviliðsstjóra Starfsfólk bráðamóttöku óttist um heilsu sína og öryggi Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Vill að virðisaukaskattur á barnavörur verði látinn fjúka Starfsfólk á bráðamóttöku segist óttast um öryggi sitt Afplánaði of lengi en fær ekki krónu Hæstiréttur fjallar um hryðjuverkamálið svokallaða í dag Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar „Aðferðafræðin við þetta mál er alveg galin“ Úkraínumenn á Íslandi minntust Kjartans Sævars Lægðirnar nái ekki til landsins Réðst á fyrrverandi kærasta sinn eftir sambandsslit Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Stoltur yfir arfleifð Bryndísar Klöru en söknuðurinn sár Sjá meira