Lífið

Óskar öllum Íslendingum guðs blessunar

Stefán Árni Pálsson skrifar
Geir Ólafsson hefur unnið að nýrri plötu undanfarna mánuði og það með frábæru tónlistarfólki. Veiran hefur vissulega haft áhrif á hans líf og starf en Geir horfir bjartsýnn á framtíðina. 
Geir Ólafsson hefur unnið að nýrri plötu undanfarna mánuði og það með frábæru tónlistarfólki. Veiran hefur vissulega haft áhrif á hans líf og starf en Geir horfir bjartsýnn á framtíðina.  visir/vilhelm

„Þessi plata hefur að geyma lög eftir mig og fleiri eins og Richard Scobie, og eiga það sameiginlegt að hafa aldrei verið gefin út fyrr enn nú,“ segir stórsöngvarinn Geir Ólafs sem gefur út plötu á næstunni.

Geir segist hafa unnið verkið með frábærum tónlistarmönnum frá Bandaríkjunum og einnig Þóri Baldurssyni og Sigrúnu Eðvaldsdóttur og fleiri.

„Tónlistin sem slík er óhefðbundin því sem ég hef verið að gera og er í raun bland af pop, klassík og latin stefnu,“ segir Geir.

Hann segir að síðustu mánuðir hafi verið erfiðir fyrir tónlistarfólk hér á landi.

„Þessir mánuðir hafa snert okkur öll á einhvern hátt og hef ég lítið sem ekkert komið fram. Það eru hins vegar forréttindi að búa í landi með eins hæfileikaríkum einstaklingum sem hafa unnið dag og nótt til að verja samfélagið og ber að hrósa því frábæra fólki, bæði stjórnendum þessa lands sem og heilbrigðisfólki sem svo sannarlega hafa gert sitt besta.“

Undanfarin ár hefur Geir verið með jólatónleikana Las Vegas Christmas Show.

„Eins og staðan er núna þá get ég haldið þessu til streitu, matur og tónleikar 3., 4. og 5. desember og miðasala á fullu á Tix.is. Ég vona að ég geti haldið tónleikana. Annars óska ég öllum Íslendingum guðs blessunar og megi aðstæður verða öllum til hins betra.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.