Reiðubúin að fara í stjórnarandstöðu eftir 30 ára valdatíð Atli Ísleifsson skrifar 3. september 2020 12:30 Milo Djukanovic hefur gegnt embætti forseta Svartfjallalands frá árinu 2018. AP
Lýðræðislegi sósíalistaflokkurinn í Svartfjallalandi (DPS) er reiðubúinn að fara í stjórnarandstöðu eftir að hafa verið við völd í landinu í um þrjátíu ár. Það sé þó háð því að þrír núverandi stjórnarandstöðuflokkar nái saman um myndun nýrrar samsteypustjórnar. Þetta segir Milo Djukanovic, forseti Svartfjallalands, en þingkosningar fóru fram í landinu á sunnudag. „Við erum reiðubúin að samþykkja úrslit kosninganna og vera sterkasti flokkurinn í stjórnarandstöðu. En við verðum að sjá til hvort að þriggjaflokkabandalagið geti myndað ríkisstjórn,“ sagði Djukanovic. Allt frá stofnun DPS árið 1991 hefur flokkurinn alltaf borið sigur úr býtum í þingkosningum í landinu, þó að það hafi stundum falið í sér að hann hafi þurft að starfa með smærri flokkur til að ná meirihluta á þinginu. Flokkurinn beið þó nokkurn ósigur í þingkosningum sunnudagsins og fékk um 35 prósent atkvæða. Þrír flokkar eða bandalög, sem hafa verið í stjórnarandstöðu, reyna nú að ná saman um myndun nýrrar samsteypustjórnar, en saman eru þeir með 41 þingsæti af 81.
Svartfjallaland Mest lesið Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira