Johnson og Matsuyama efstir fyrir lokadaginn á BMW mótinu Ísak Hallmundarson skrifar 29. ágúst 2020 23:00 Dustin Johnson hefur verið að spila vel síðustu vikur. getty/Andy Lyons
Dustin Johnson og Hideki Matsuyama eru efstu tveir kylfingarnir fyrir lokadaginn á BMW-meistaramótinu í golfi, sem er hluti af PGA. Þeir eru báðir á samtals einu höggi undir pari eftir þrjá hringi og eru einu kylfingarnir sem eru undir pari á mótinu eins og er. Báðir spiluðu þeir á 69 höggum í dag, tveimur höggum undir pari. Rory McIlroy var efstur fyrir daginn í dag. Hann lék á tveimur höggum yfir pari á hringnum í dag og er núna í þriðja sæti ásamt þremur öðrum kylfingum, samtals á einu höggi yfir pari. Tiger Woods hefur ekki náð sér á strik á þessu móti og hefur leikið alla þrjá hringi mótsins yfir pari vallarins. Hann er í 55. sæti á samtals tíu höggum yfir pari. Lokahringurinn á morgun verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf. Útsending hefst á slaginu 16:00.
Golf Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Newcastle með manninn sem Arsenal vantar Enski boltinn Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Enski boltinn „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM Handbolti Elon Musk sagður vilja kaupa Liverpool Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu golfbolta hvors annars og misstu af milljónum Gunnlaugur í úrvalslið Evrópu og bestur ásamt Huldu Meiddist við að elda jólasteikina og missir af fyrstu mótum ársins Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Tiger og sonur í forystu á feðgamótinu Verða að hafa fæðst sem konur til að fá að keppa á LPGA Vill verðlaunafé á Ryder Cup til að styrkja góð málefni Meiddur Tiger segist enn hafa eldmóðinn Sjá meira