Vilja flytja eldislax á markað með tómum farþegaþotum Kristján Már Unnarsson skrifar 18. mars 2020 13:45 Frá fiskeldiskvíum í Noregi. getty/Artur Widak
Norsk laxeldisfyrirtæki kanna nú hvort nota megi tómar farþegaþotur til að koma ferskum laxi á markað með flugi. Fyrirtækið Firda Seafood, sem er með höfðustöðvar norðan Bergen, stendur fyrir þessu ásamt fleirum í geiranum en þau leita leiða til tryggja að afurðir þeirra komist áfram á markað, þrátt fyrir að farþegaflug falli niður, en fiskútflytjendur hafa getað nýtt hluta farangursrýmis farþegavéla. Ein hugmyndin er einfaldlega að fylla farangursrými flugvélanna með laxi og silungi, að því er norskir fjölmiðlar greina frá í gær. Þrátt fyrir hremmingar á hlutabréfamörkuðum vegna kórónufaraldurs hefur verð á eldislaxi haldist stöðugt og hátt, í kringum 68 norskar krónur kílóið, eða um 900 krónur íslenskar. „Auðvitað fylgir þessu kostnaður en á sama tíma hrópar markaðurinn á fiskinn. Okkar tilfinning er að viðskiptavinir séu tilbúnir að sætta sig við verðhækkun, að minnsta kosti ef við deilum aukakostnaði við flug,“ segir Ola Braanaas, forstjóri Firda Seafood í samtali við Finansavisen. Firda Seafood seldi sjávarafurðir fyrir um einn milljarð norskra króna á síðasta ári. Milli 10 og 20 prósent voru flutt út frá Noregi með flugi og núna óttast forstjórinn að brenna inni með ferskan lax, þegar verið er að aflýsa stórum hluta flugferða. Haft er eftir Martin Langaas, framkvæmdastjóra fraktmála hjá í Avinor, hins norska Isavia, að eftirspurn eftir vöruflutningaflugi hafi rokið upp um allan heim undanfarna daga. „Það hefur orðið mikil aukning. Vandamálið fyrir útflytjendur sjávarafurða er að verð sem þeir hafa verið vanir að greiða fyrir fraktflug gæti hækkað verulega. Það eru svo margir sem eru tilbúnir að borga meira fyrir flugfrakt en það sem norskir fiskútflytjendur hafa verið að greiða,“ segir Langaas. Hann segist vera meðvitaður um að nokkur flugfélög íhugi að fljúga tómum farþegaflugvélum bara til að koma vörum á milli staða. Hins vegar gæti slíkur flutningur þurft að kosta þrefalt meira en venjulega.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Fiskeldi Fréttir af flugi Noregur Sjávarútvegur Tengdar fréttir Bjartsýnir á að flug með ferskan fisk verði tryggt Mikill samdráttur í farþegaflugi vekur spurningar um hvernig fer með útflutning á ferskum íslenskum sjávarafurðum með flugi en stór hluti nýtir farangursrými farþegaflugvéla. 18. mars 2020 16:45 Sandgerði að eflast sem bær "flugfisks“ Þrjú ný fiskvinnslufyrirtæki hafa orðið til í Sandgerði á einu ári sem öll eiga það sammerkt að sérhæfa sig í fiski sem sendur er samdægurs með flugi til útlanda. 11. mars 2014 18:01 Fraktflugið upp um 40% með styrkingu krónunnar og Costco Fraktflutningur Icelandair Cargo hefur farið stigvaxandi undanfarin sex ár. Aukningin í júlí nam rúmum fjörutíu prósentum miðað við sama mánuð í fyrra. Framkvæmdastjórinn segir ástæðuna margþætta. 17. ágúst 2017 06:00 Farþegaflugið býr til nýja fiskmarkaði Beint samhengi er á milli fjölgunar heilsársflugleiða frá Keflavíkurflugvelli og nýrra markaða fyrir fisk. Góðar flugtengingar gjörbreyta landfræðilegri stöðu Íslands. Vanmetið hvað flugvöllurinn hefur skapað mikið fyrir sjávarútveg 21. janúar 2017 07:00 Mest lesið Vilja minnka líkurnar á því að vinna í Lottóinu Viðskipti innlent Milljarður í afgang í Garðabæ Viðskipti innlent Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Atvinnulíf Plasttappamálið flaug í gegnum þingið Neytendur Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Hneykslaðist á „óútfærðum afkomubætandi aðgerðum“ Viðskipti innlent „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ Atvinnulíf Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf Útflutningur gefur eftir en einkaneyslan stígur fram á sviðið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íhuga hærri tolla á alla Facebook hættu að beina auglýsingum að konu eftir að hún lögsótti Meta Boeing fær að smíða orrustuþotur framtíðarinnar Hótar himinháum áfengistollum á Evrópu Svara tollum Trumps: „Við munum ekki standa aðgerðarlausir hjá“ „Alvarlegt viðskiptastríð“ hafið Northvolt í þrot Vill refsa Kanada svo lesið verði um það í sögubókum Óvænt verkföll á flugvöllum í Þýskalandi hafa víðtæk áhrif Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Skype heyrir brátt sögunni til Sjá meira
Bjartsýnir á að flug með ferskan fisk verði tryggt Mikill samdráttur í farþegaflugi vekur spurningar um hvernig fer með útflutning á ferskum íslenskum sjávarafurðum með flugi en stór hluti nýtir farangursrými farþegaflugvéla. 18. mars 2020 16:45
Sandgerði að eflast sem bær "flugfisks“ Þrjú ný fiskvinnslufyrirtæki hafa orðið til í Sandgerði á einu ári sem öll eiga það sammerkt að sérhæfa sig í fiski sem sendur er samdægurs með flugi til útlanda. 11. mars 2014 18:01
Fraktflugið upp um 40% með styrkingu krónunnar og Costco Fraktflutningur Icelandair Cargo hefur farið stigvaxandi undanfarin sex ár. Aukningin í júlí nam rúmum fjörutíu prósentum miðað við sama mánuð í fyrra. Framkvæmdastjórinn segir ástæðuna margþætta. 17. ágúst 2017 06:00
Farþegaflugið býr til nýja fiskmarkaði Beint samhengi er á milli fjölgunar heilsársflugleiða frá Keflavíkurflugvelli og nýrra markaða fyrir fisk. Góðar flugtengingar gjörbreyta landfræðilegri stöðu Íslands. Vanmetið hvað flugvöllurinn hefur skapað mikið fyrir sjávarútveg 21. janúar 2017 07:00