Halldór: Frábært lið og frábær umgjörð á Selfossi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. febrúar 2020 17:00 Halldór þjálfaði FH á árunum 2014-19. vísir/bára „
Þetta frábært lið og frábær umgjörð í kringum það. Þetta er líka tækifæri til að vera þjálfari í fullu starfi. Það eru ekki mörg félög á Íslandi sem geta boðið upp á það. Leikmannahópurinn er spennandi og það er margt talaði fyrir þessari ákvörðun,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon sem tekur við karlaliði Selfoss fyrir næsta tímabil. Halldór skrifaði undir þriggja ára samning við Selfoss. Hann klárar tímabilið með karlalið Fram og færir sig svo um set í sumar. Halldór tekur við Selfossi af Grími Hergeirssyni sem hættir með liðið eftir tímabilið. Selfoss hefur verið ein helsta útungunarstöð íslenskra handboltamanna undanfarin ár. Halldór segir að uppeldisstarfið á Selfossi heilli.Svipað og var hjá KA„Klárlega, það er mjög heillandi að starfa í þannig umhverfi þar sem sterkir leikmenn kom upp og akademían er sterk,“ sagði Halldór sem líkir umhverfinu á Selfossi við það sem var hjá KA undir lok síðustu aldar þegar hann byrjaði að spila með meistaraflokki. „Þar voru margir uppaldir leikmenn og mér finnst þetta svipað. Góðir ungir strákar að koma upp með kjarna af eldri leikmönnum. Það er líka komin sigurhefð á Selfossi því liðið er Íslandsmeistari.“ Halldór segir að Selfoss sé mikill handboltabær og það sé heillandi. „Umgjörðin er mjög spennandi. Handboltaáhuginn í bænum er mikill og það er vel mætt á leiki. Öll þjálfun er frábær og ég kem inn í fastmótað umhverfi og góðan kúltúr. Það hafði mikið að segja,“ sagði Halldór að lokum.
Árborg Olís-deild karla Tengdar fréttir Halldór tekur við Selfossi í sumar Íslandsmeistarar hafa fundið sér nýjan þjálfara. 23. febrúar 2020 16:46 Mest lesið Aðeins sautján konur með betri tíma en Elísa í ógnarsterku utanvegahlaupi Sport Emery segir brjálæði hversu mikið Villa fékk fyrir Watkins og Konsa Enski boltinn Óvæntar vendingar á elleftu stundu hjá Elísu í einu sterkasta hlaupi í heimi Sport Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin Körfubolti Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Handbolti Systurnar báðar með tvö mörk á Ásvöllum og KR upp í annað sætið Íslenski boltinn Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Handbolti Haaland og Cherki báðir með tvennu gegn Palace Enski boltinn Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Handbolti Fylkir kláraði Gróttu undir lokin og Aron Snær með þrennu fyrir Þrótt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Landsliðskona í Val Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Mun Guðmundur reisa Holland við? Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Elvar fer frá Magdeburg til Löwen: „Frábær bónus að spila með Hauki frænda“ Glænýtt gólf fyrir frumraun Arons en stúkurnar bíða Daníel með slitna hásin Kallar eftir naflaskoðun í norskum handbolta: „Bilið í fremstu þjóðir hefur aukist“ Rifu sig upp eftir vonbrigðin í gær og unnu Frakka eftir rosa endasprett Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 31-33 | Þjóðverjar áttu alltaf svar Fylgist stoltur með litla bróður á EM: „Verið draumur hans í mjög langan tíma“ Sjá meira
Halldór tekur við Selfossi í sumar Íslandsmeistarar hafa fundið sér nýjan þjálfara. 23. febrúar 2020 16:46