Lífið

Regína, Klemens og Unnsteinn fulltrúar Íslands í dómnefndinni

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Unnsteinn, Regína og Klemens sitja í dómnefndinni, ásamt sjö öðrum alþjóðlegum fulltrúum.
Unnsteinn, Regína og Klemens sitja í dómnefndinni, ásamt sjö öðrum alþjóðlegum fulltrúum. Myndir/Aðsendar

Unnsteinn Manúel Stefánsson söngvari, Klemens Nikulás Hannigan tónlistarmaður og Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona eru þeir Íslendingar sem sitja í alþjóðlegri dómnefnd Söngvakeppni Sjónvarpsins sem fram fer í kvöld. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu. Dómnefndin er skipuð fimm konum og fimm körlum. Hana skipa:

Ana M. Bordas

Spánn

Yfirmaður alþjóðlegrar sjónvarpsframleiðslu hjá spænska ríkissjónvarpinu

Eirini Giannara

Grikkland

Blaðamaður og fjölmiðlafulltrúi gríska ríkissjónvarpsins í Eurovision

Unnsteinn Manúel

Ísland

Söngvari

Kleart Duraj

Albanía

Verkefnastjóri Eurovision hjá albanska ríkissjónvarpinu

Klemens Hannigan

Ísland

Tónlistarmaður

Alexandra Rotan

Noregur

Söngkona í norsku hljómsveitinni Keiino

Regína Ósk Óskarsdóttir

Ísland

Söngkona

Edward af Sillén

Svíþjóð

Leikstjóri og handritshöfundur. Leikstýrði Eurovision keppnunum í Svíþjóð 2013 og 2016

Audrius Girzadas

Litháen

Yfirframleiðandi litháeska ríkissjónvarpsins

Christina Schilling

Danmörk

Lagahöfundur og söngkona

Dómnefndin hefur helmingsvægi á móti símakosningu almennings þegar kemur í ljós hvaða tvö lög komast í úrslitaeinvígi kvöldsins. Þau lög sem komast í einvígið verða síðan flutt aftur, en að því loknu fer fram hrein símakosning. Líkt og á síðasta ári munu lögin tvö halda þeim atkvæðum sem þau hlutu í fyrri símakosningu áhorfenda. Stigahæsta lag kvöldsins verður því framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision, í Rotterdam í maí.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.