Trans börn Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir skrifar 11. febrúar 2020 13:30 Eftir því sem umræðan um málefni trans fólks á Íslandi sem og víðar hefur opnast mun meir, hafa sífellt fleiri manneskjur haft tækifæri á því að stíga skrefið í að vera þau sjálf, þar á meðal börn og unglingar. Aukin jákvæð samfélagsleg umræða hefur orðið til þess að aðgengi að upplýsingum er mun greiðari og auðveldara er fyrir trans fólk að finna fólk til þess að samsama sig með, hvort sem það er í þeirra persónulega lífi, á samfélagsmiðlum, fjölmiðlum eða í efni í sjónvarpinu. Málefni trans barna hafa mikið verið í deiglunni undanfarnar vikur, en þann 9. febrúar var fyrsti þáttur af þremur úr þáttaröðinni Trans börn frumsýndur á Stöð 2. Þáttaröðin fjallar um fjögur trans börn og fjölskyldur þeirra yfir tveggja ára tímabil. Þættirnir veita dýrmæta innsýn í líf þeirra og veita fólki tækifæri til þess að kynna sér málefnið á opinskáan, fræðandi og einlægan hátt. Langflestar trans manneskjur sem eru fullorðin í dag muna þann tíma þegar þau voru trans börn eða unglingar, en höfðu einfaldlega ekki tök á því að stíga það skref sem mörg trans börn geta nú. Fyrir mörg hefur það haft í för með sér skelfilegar afleiðingar fyrir andlega og líkamlega heilsu þeirra, enda er hafa rannsóknir svo áratugum skiptir sýnt fram á að andleg heilsa trans fólks sem hefur ekki tök á að vera það sjálft er mjög slæm, og aðgengi að stuðningi og heilbrigðisþjónustu bætir heilsu og lífsgæði þeirra til muna. Þetta snýst um miklu meira heldur en að börn segi í eitt skipti að þau séu stelpa eða strákur og þeim sé þá skutlað upp á Barna og unglinga geðdeild Landspítala til að byrja ferli. Börn sem eru trans sýna endurtekið og ítrekað fram á að þau séu ekki sátt við það kyn sem þeim var úthlutað við fæðingu og þegar það kemur að stuðningi fagaðila er undanfari þess marga ára ferli. Fagaðilar gera sömuleiðis sitt besta að bregðast við þörfum hvers og eins barn og er svo sannarlega ekki farið út í neitt í neinu kæruleysi. Engin læknisfræðileg inngrip eiga sér stað fyrr en í fyrsta lagi þegar kynþroski byrjar þar sem unglingum eru gefnir hormónablokkerar, sem hægja á áhrifum kynþroska og hafa engar óafturkræfar afleiðingar. Þetta kemur í veg fyrir djúpstæða vanlíðan og angist sem getur fylgt kynþroska og veitir börnunum tækifæri á að ákveða síðar meir hvort þau vilji hefja hormónameðferðir eða ekki. Ef viðkomandi unglingur er tilbúinn til, í samráði við foreldra og fagaðila, þá getur viðkomandi í fyrsta lagi byrjað hormónameðferð milli 16-18 ára. Nýjustu rannsóknir á þessu sviði sýna fram á að velferð trans barna og unglinga batnar til muna þegar þau hafa stuðning og fá aðgengi að þeirri þjónustu sem þau þurfa á að halda, og snarminnkar það tíðni sjálfsvíga, sjálfskaða og vanlíðan meðal þessa hóps. Rannsóknir sýna einnig fram á að kynvitund trans barna er jafn sterk og jafnaldra þeirra og því er mikilvægt að hlusta á börn og unglinga og leyfa þeim að stjórna ferðinni. Sjálf bý ég við þau forréttindi að hafa getað stigið tiltölulega snemma fram, eða þegar ég var rétt um 18 ára gömul fyrir rúmum tíu árum síðan. Að ganga í gegnum kynþroska sem samsvaraði ekki minni kynvitund olli mér djúpstæðri vanlíðan sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir hefði ég getað stigið fram fyrr og fengið aðgengi að þeirri þjónustu sem ég þurfti. Afleiðingar þess fylgja mér enn í dag og er ómögulegt að lýsa þeirri angist og kvíða sem ég sem barn og unglingur þurfti að upplifa af sökum þess. Á þeim tíma sem ég loksins stíg fram var umræðan um trans fólk af skornum skammti og höfðu aðeins örfáar manneskjur á Íslandi stigið fram opinberlega. Það var því ekki auðvelt skref að taka sjálfa mig í sátt, enda birtingarmyndir trans fólks í fjölmiðlum og sjónvarpi afar takmarkaðar og undantekningarlaust neikvæðar. Það hefur því verið erfitt að vinna sig í gegnum þá skömm sem myndaðist og taka sjálfa mig í sátt. En sem betur fer átti ég stuðningsríka fjölskyldu, frábæra vini og yndislegt starfsfólk innan Verkmenntaskólans á Akureyri sem stóðu með mér og studdu mig í gegnum mitt ferli alla tíð. Það veldur mér því ómældri gleði að sjá trans börn og unglinga hafa tækifæri sem ég hafði ekki þegar ég var yngri—sem mæta skilningi hjá fjölskyldu, jafnöldrum og sínu nærsamfélagi. Þau börn og unglingar sem hafa tækifæri á að stíga fram geta byrjað að lifa sínu lífi sem þau sjálf mun fyrr heldur en ella og þurfa ekki að ganga í gegnum barnæsku sína og táningsár full af skömm, vanlíðan og kvíða um framtíðina. Velferð þeirra er í húfi og eru þau sú einu sem virkilega vita hver þau eru. Hver sem hefur eytt tíma með trans börnum og unglingum ætti að verða var við slíkt um leið, enda eru þau bara eins og hver önnur börn og unglingar. Sem stendur er þjónusta við trans börn og unglinga í miklu uppnámi í kjölfar þess að Barna- og unglingageðdeild Landspítala tilkynnti að teymið sem hélt utan um þessi mál hefði verið lagt niður—þvert á nýlega samþykkt lög um kynrænt sjálfræði 80/2019—vegna skorts á mannafla og fjármagni. Samtökin ‘78, Trans Ísland og Trans Vinir hafa því sett af stað undirskriftarlista til að þrýsta á stjórnvöld að bregðast tafarlaust við þessu ástandi. Ég hvet því allt landsfólk til að styðja við bakið á trans börnum og unglingum og skrifa undir áskorunina. Sýnum vilja í verki og tryggjum velferð allra barna sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Höfundur er kynjafræðingur og formaður Trans Íslands, félags trans fólks á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Hinsegin Trans börn Ugla Stefanía Tengdar fréttir Þetta er fyndið Til eru hópar í samfélaginu sem eiga ekki undir högg að sækja vegna sinnar kynvitundar, kynhneigðar, húðlitar, líkamlegs atgervis, holdafars eða kyneinkenna. 9. ágúst 2019 17:08 Við þurfum öll að pissa Kannski ættum við að hætta þessari þrálátu kynjaskiptingu og skipta frekar upp í klósett þar sem fólk fær að pissa í friði og klósett þar sem fólk getur áreitt hvort annað? 27. febrúar 2017 10:26 Trans fólk, intersex fólk og heilbrigðiskerfið sem mismunar þeim Trans er vísun í enska regnhlífarhugtakið transgender. 14. október 2015 09:49 Ekki vera nasisti Að bera fólk sem berst gegn hatursorðræðu eða krefst þess að fólk beri ábyrgð á opinberum ummælum sínum við nasista og einræðisherra er að verða að þrálátu stefi þjóðfélagsumræðunni. 2. maí 2017 11:25 „Dæmigerður kynáttunarvandi“ Ég las grein fyrir stuttu þar sem trans fólk er notað sem viðfangsefni í greinarskrifum og er meðal annars talað um að persóna í íslenskri bókmenntasögu sé með "dæmigerðan kynáttunarvanda“ og að hún sé "strákur fæddur í kvenkynslíkama.“ 8. nóvember 2016 09:00 Mest lesið Ef þetta er ekki þrælahald – hvað er það þá? Ágústa Árnadóttir Skoðun Daði Már og mannauðsmálin Kári Sigurðsson Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson Skoðun „Groundhog Day“ í boði réttarkerfisins Davíð Bergmann Skoðun Skerjafjarðargöng – spörum tíma í umferðinni Hilmar Ingimundarson Skoðun Hvað ertu að gera við sparnaðinn? Jóhann Óskar Jóhannsson Skoðun Við látum stjórnast af sértrú í peningamálum Örn Karlsson Skoðun Að loka á foreldri er ekki einfaldasta leiðin Sahara Rós Blandon Skoðun Mýrar skipta máli - Alþjóðlegur dagur votlendis Álfur Birkir Bjarnason Skoðun Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við látum stjórnast af sértrú í peningamálum Örn Karlsson skrifar Skoðun „Groundhog Day“ í boði réttarkerfisins Davíð Bergmann skrifar Skoðun Skattar hér, skattar þar, skattar alls staðar Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Flækjur í fjölskyldum Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir skrifar Skoðun Skerjafjarðargöng – spörum tíma í umferðinni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað ertu að gera við sparnaðinn? Jóhann Óskar Jóhannsson skrifar Skoðun Valdboð í stað samtals – hættulegur tíðarandi Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Tvær milljónir barna deyja í þögn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Stóra sleggjan Gunnar Einarsson skrifar Skoðun Daði Már og mannauðsmálin Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Orðaleppar og annað óþolandi Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Eru tæknilegar forsendur orkuskipta til staðar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mýrar skipta máli - Alþjóðlegur dagur votlendis Álfur Birkir Bjarnason skrifar Skoðun Varnarstefna uppgjafar – hvað ef íslenska handboltalandsliðið hugsaði svona Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Myndir þú vilja losna við áhyggjur? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Börn í brennidepli – samfélagsleg ábyrgð okkar allra Hákon Skúlason,Jóhanna Pálsdóttir skrifar Skoðun Getur hver sem er boðið sig fram til sveitarstjórna? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Sleggjunni beitt – gegn almenningi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Borgarlínan verður kosningamálið í vor Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Framboð sem byggir á trú á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fjölskyldueinelti, skömmin og Beckham-fjölskyldan Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sterk heilsugæsla um allt land Alma D. Möller,Jón Magnús Kristinsson skrifar Skoðun Vissulega miklu meira en tollabandalag Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Gott frumvarp en hverjir komast raunverulega að borðinu? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun María Rut og samkeppnishæfnin Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Að hafa það sem þarf Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Kjósum mann sem klárar verkin! Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg er ramminn, ekki málverkið Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Þetta er fyndið Til eru hópar í samfélaginu sem eiga ekki undir högg að sækja vegna sinnar kynvitundar, kynhneigðar, húðlitar, líkamlegs atgervis, holdafars eða kyneinkenna. 9. ágúst 2019 17:08
Við þurfum öll að pissa Kannski ættum við að hætta þessari þrálátu kynjaskiptingu og skipta frekar upp í klósett þar sem fólk fær að pissa í friði og klósett þar sem fólk getur áreitt hvort annað? 27. febrúar 2017 10:26
Trans fólk, intersex fólk og heilbrigðiskerfið sem mismunar þeim Trans er vísun í enska regnhlífarhugtakið transgender. 14. október 2015 09:49
Ekki vera nasisti Að bera fólk sem berst gegn hatursorðræðu eða krefst þess að fólk beri ábyrgð á opinberum ummælum sínum við nasista og einræðisherra er að verða að þrálátu stefi þjóðfélagsumræðunni. 2. maí 2017 11:25
„Dæmigerður kynáttunarvandi“ Ég las grein fyrir stuttu þar sem trans fólk er notað sem viðfangsefni í greinarskrifum og er meðal annars talað um að persóna í íslenskri bókmenntasögu sé með "dæmigerðan kynáttunarvanda“ og að hún sé "strákur fæddur í kvenkynslíkama.“ 8. nóvember 2016 09:00
Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir skrifar
Skoðun Varnarstefna uppgjafar – hvað ef íslenska handboltalandsliðið hugsaði svona Arnór Sigurjónsson skrifar
Skoðun Börn í brennidepli – samfélagsleg ábyrgð okkar allra Hákon Skúlason,Jóhanna Pálsdóttir skrifar
Skoðun Ung hjón á Íslandi eru að kafna – kerfið er að drepa framtíð þeirra Sigurður Sigurðsson skrifar
Frístundastarf mikilvæg stoð í menntakerfi Reykjavíkurborgar Steinn Jóhannsso,Soffía Pálsdóttir Skoðun