Lífið

Gettu betur-liðar reittu Creed aðdáendur til reiði

Birgir Olgeirsson skrifar
Scott Tapp, söngvari Creed.
Scott Tapp, söngvari Creed. Vísir/Getty

Það varð uppi fótur og fit á samfélagsmiðlum þegar spurt var um grísku eyjuna Krít í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu betur, í gær. Þar áttust við Tækniskólinn og Borgarholtsskóli.

Í spurningunni voru ýmsar staðreyndir um eyjuna Krít raktar, þar á meðal að hún væri þröskuldur Evrópu vegna þess að hún liggur við mörk Evrópu, Asíu og Afríku, og að hún deildi nafni með „einni verstu hljómsveit sögunnar“, Creed.

„Versta hljómsveit sögunnar að mati…,“ sagði Ingileif Friðriksdóttir annar dómar keppninnar og greip hinn dómarinn, Vilhelm Anton Jónsson, inn í og kláraði setninguna með því að segja: „Allra“.

Þetta féll hreint ekki í kramið hjá einhverjum áhorfendum keppninnar.

Þar á meðal Brynhildar Bolladóttur, upplýsingafulltrúa Rauða krossins.

Í ljós kom að þar var Vilhelm Anton hafður fyrir rangri sök. Einn af spurningahöfundum keppninnar steig fram og gekkst við að hafa samið þessa spurningu. Sagðist hann styðjast við vísindaleg gögn þess efnis og vitnaði í könnun sem bandaríska tímaritið Rolling Stone gerði á meðal lesenda sinna.

Lesendurnir völdu reyndar Creed ekki verstu hljómsveit sögunnar, heldur verstu hljómsveit tíunda áratugar síðustu aldar.

Spyrill keppninnar, Kristjana Arnardóttir, ákvað svo að taka af allan vafa um hennar skoðun á hjómsveitinni.

Þessi staðhæfing um hljómsveitina í Gettu betur vakti nokkra reiði hjá Creed-aðdáendum á Íslandi.

Daníel Geir Moritz, formaður knattspyrnuráðs ÍBV, harmaði orð Gettu betur-liða: 

Mosfellingurinn Ásgeir Jónsson játaði ást sína á sveitinni: 

Þá taldi Tómas Steindórsson sig eiga ýmislegt sökótt við Vilhelm Anton Jónsson en þarf víst víst að beina óánægju sinni að Sævari Helga. 

Hljómsveitin Creed var stofnuð í Tallahassee í Flórída-ríki Bandaríkjanna árið 1993. Á ferli sínum hefur hljómsveitin gefið út fjórar plötur og selt yfir 53 milljónir eintaka á heimsvísu. Sveitin naut því mjög mikillar velgengni við lok síðustu aldar og upphaf þessarar. Gagnrýnendur hafa margir hverjir keppst við að tæta sveitina í sig og hefur hún áunnið sér nokkurt hatur meðal margra sem þola hreinlega ekki kraftballöðurnar þeirra og trúarlegar tengingar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.