Lífið

Ragga Ragnars kemur mörgum á ó­vart með frum­sýningu á nýju tón­listar­mynd­bandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ragga getur greinilega sungið.
Ragga getur greinilega sungið.

Leikkonan Ragnheiður Ragnarsdóttir sem gerði garðinn frægan sem afrekskona í sundi á sínum tíma gaf í morgun út sitt fyrsta lag og myndband við lagið Broken Wings.

Þau Kieran O´Reilly og Ragnheiður syngja bæði í laginu. Myndbandið við lagið er stórglæsilegt og var það allt tekið upp hér á landi.

Það var Guðjón Ragnarsson sem leikstýrði myndbandinu en Kieran og Ragga sömdu lagið saman.

Sunddrottningin hefur verið að gera það gott í Los Angeles undanfarið þar sem hún er búsett ásamt fjölskyldu sinni og meðal annars komið fram í þáttunum vinsælu Vikings.

Hér að neðan má sjá og heyra frumraun Ragnheiðar í tónlistarbransanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.