Í aðdraganda aðalfunda: Fjögur atriði úr skýrslu Jeff Bezos Rakel Sveinsdóttir skrifar 14. febrúar 2020 09:00 Jeff Bezos forstjóri Amazon lítur svo á að hjá honum sé alltaf Dagur 1 í rekstri. Hann segir óánægða viðskiptavini mikilvæga.
Nú er aðalfundarhrinan framundan sem þýðir að fjölmiðlar munu í kjölfarið fjalla um tölur úr ársreikningum eða hverjir voru kosnir í stjórn. En fyrir aðalfundina er ýmiss undirbúningur í gangi. Eitt sem má nefna er að með ársreikningum skrifa framkvæmdastjórar og forstjórar skýrslu til stjórnar eða hluthafa. Af því tilefni tókum við saman fjögur áhugaverð atriði úr skýrslu Jeff Bezos forstjóra Amazon í fyrra. Skýrslan er fyrir hluthafa og nokkuð áhugavert að rýna í hvað farsæll leiðtogi og einn ríkasti maður heimsins leggur áherslu á. 1. Óánægðir viðskiptavinir Það hljómar kannski undarlega en eitt af því sem Bezos ræðir sérstaklega eru óánægðir viðskiptavinir. En þetta er kannski það sem gerir hann svo farsælan. Bezos er á tánum í viðskiptum og gerir sér grein fyrir því að kröfur viðskiptavina breytast dag frá degi og þeim þarf að mæta. Um viðskiptavinina segir Bezos meðal annars: „One thing I love about customers is that they are divinely discontent.“ Sem á íslensku mætti þýða sem „Eitt af því sem ég elska við viðskiptavini er hvað þeir eru ótrúlega óánægðir.“ Það sem Bezos er að vísa í er hversu mikilvægar kvartanir viðskiptavina eru því það að skilja óánægju viðskiptavina gerir ekkert nema að betrumbæta þjónustuna. Síðan minnir hann á það sem allir vita: Á tímum samfélagsmiðla geta áhrif óánægðs viðskiptavinar orðið að stórmáli. 2. Frá hugmynd til veruleika Bezos segir í kveðju sinni til hluthafa að hjá honum sé enn Dagur 1. Hann segir að hugmyndir skipti litlu ef þær komist ekki til framkvæmda. „Ideas have very little value in business and what turns out to have huge value is execution.“ Sjálfur segist Bezos hafa þurft að vinna í sjálfum sér til að ná betri tökum á þessu. Það hafi hann gert með því að reyna að vera með annan fótinn í framtíðarsýninni en hinn fastan fyrir í núinu þar sem tryggja þarf að verkefni komist í framkvæmd. Að ná tökum á þessu segir Bezos lykilatriði fyrir forstjóra. Það er hægt að kenna öllum að standa á höndum segir Jeff Bezos. Hann segir þjálfun starfsmanna lykilatriði fyrir vöxt og velgengni fyrirtækja. 3. Að fjárfesta í þjálfun starfsmanna Bezos segir að flestir falli í þá gryfju að vilja ráða fólk sem uppfyllir öll þau hæfisskilyrði sem hentugast eru. Það sé hins vegar margt sem ekki er hægt að kenna. Hávaxinn körfuboltamaður er eftirsóttur. Þú kennir samt ekki ,,hæð“ segir hann sem myndlíkingu. Öllum sé hins vegar hægt að kenna að standa á höndum ef rétt þjálfun er til staðar. Að byggja upp fyrirtækjamenningu þar sem fjárfest er í þjálfun segir Bezos vera ávísun á frekari vöxt og velgengni. 4. Háleit markmið um frammistöðu Bezos er mjög hreinskilinn þegar kemur að því að setja kröfur á sitt fólk. Reyndar segir hann að ef stjórnendur eru ekki sagðir gera of miklar kröfur þá séu þeir ekki að setja markmiðið nógu hátt. „I’d go so far as to say that if your standards are not considered unreasonable then they are simply not high enough.“ Bezos segir eitt lykilhlutverk leiðtoga að fá starfsfólk til að fara fram úr sínum eigin björtustu vonum. Hans upplifun sé sú að það sé í rauninni stórkostlegt að sjá hvað gerist þegar fólk er hvatt til að gera alltaf sitt besta. Fólk geri það ef það veit að það eru miklar væntingar gerðar um þeirra störf. Að ná árangri snýst ekkert endilega um sýnileg verkefni sem fá formlega umbun því oft séu um að ræða verkefni sem enginn veit um eða heyrir af. Þegar fyrirtækjamenningin sé sú að allir setja markið hátt upplifi fólk árangur alltaf sem umbun í sjálfu sér. „…a culture of high standards is protective of all the ‘invisible’ but crucial work that goes on in every company. I’m talking about the work that no one sees. The work that gets done when no one is watching. In a high standards culture, doing that work well is its own reward–it’s part of what it means to be a professional.” Bezos er trúr upprunanum því með hverri árskýrslu lýkur hann orðum sínum með tilvísun í fyrstu skýrsluna sína sem forstjóri árið 1997. „As always, I attach a copy of our original 1997 letter. It remains Day 1.“
Amazon Neytendur Mest lesið Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ Atvinnulíf Ræðst í byggingu átta húsa í Hvammsvík Viðskipti innlent Íhuga hærri tolla á alla Viðskipti erlent Einn vinsælasti tengiltvinnbíll Íslendinga snýr aftur Samstarf Eldisfiskur fluttur út fyrir 54 milljarða króna Viðskipti innlent Vörur gerðar af meisturum fyrir meistara Samstarf „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ Atvinnulíf BYKO opnar nýja og glæsilega timburverslun Samstarf „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Atvinnulíf Gerðu tungumálarassíu hjá reiðhjólaverslunum Neytendur Fleiri fréttir Í fullkomnu frelsi: „Þar sem er heyskapur er ég“ „Væri samt mjög til í að vera betri söngvari“ „Við bara tókum íslensku brjáluðu bjartsýnina á þetta“ Fjórðungur Z-kynslóðarinnar hyggst flytja til útlanda Stúdentar taka til: Z-kynslóðin er að velja sér fyrirtæki framtíðarinnar „Ég vonaðist til að lampinn myndi breyta mér í A-týpu“ Fyrirsæta, frumkvöðull, fjárfestir: „Ég held ég sé ekki enn farin á gelgjuna!“ Innsæið: Við stressum oft fólk upp með spurningum og pressu „Ég nota innsæið mitt mjög mikið enda er innsæið ekkert tabú“ Hermann í Kemi: „Kom mér mjög á óvart að verða svona ástfanginn“ Kærastan grjóthörð með svefntímann kvölds og morgna Unga fólkið greinilega að hugsa um sjálfbærnimálin „Hvernig hefðu amma og afi gert þetta?“ Vinnufélagarnir: Kjaftakerlingin, dramadrottningin, sá svartsýni og fleiri Síðasta hláturskast tók verulega á grindarbotninn Góð ráð: Draumastarfið á draumavinnustaðnum Að taka því ekki persónulega hvernig týpa þinn yfirmaður er Fjórar týpur af yfirmönnum: Hver er þín týpa? Í tjaldútilegu í 53 mánuði samfleytt og tekur fjöllin með í fundarherbergið Fyrsti kaffibollinn minnir hann á að þrjú börn eru á heimilinu Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Mögulega búið að hakka sig inn á Teams samskiptin þín og fleira 30 ár í Frakklandi: „Á Íslandi virðist fólk keyra sig mjög mikið út“ Questhjónin: „Sterkbyggðustu húsin voru barirnir og vændishúsin“ Svo fölsk að móðir hennar leitaði ráða hjá kórstjóranum Gervigreindin: Píparinn öruggur en læknirinn ekki? Fleiri hlutastörf: „Viltu vera memm?“ Fleiri hlutastörf: Ríkið greiðir nú þegar 75% launa sem mótframlag Breytingar í framkvæmdastjórateymum oft nauðsynlegar Sjá meira