Skoðun

Strákarnir sem vita alltaf best!

Flosi Eiríksson skrifar

Það er eitt af einkennunum á umræðu um þjóðfélagsmál í samfélaginu hvernig ákveðin tegund af „hægri strákum“ hefur alltaf, að eigin mati, fram að færa því sem næst óhrekjanleg rök. Sérstaklega er þetta áberandi þegar það kemur að umræðum um kjaramál, jöfnuð, skatta og samhjálp, þá þurfa þeir allir að setjast við takkaborðið eða mæta í útvarp til að segja okkur hinum hvernig þetta sé í raun og veru!

Núna eru uppi alls konar lærðar útleggingar um að samningur á milli aðila á almennum vinnumarkaði sem undirritaður var í vor sé einhvers konar „sáttmáli fyrir þjóðfélagið allt“ og enginn megi hugsa um neitt annað. Í þessu speglast hugarfarið svo vel, strákarnir vita alltaf best, skilja stóra samhengið og búnir að ákveða hvernig haga á öllum hlutum. Þessi þröngu sjónarmið eru svo sett fram í nafni alls kyns samtaka atvinnurekenda sem mikil vísindi og skiptir þá ekki máli hvort það er um lengd grunnskólans, skipulag leikskólastarfs, fyrirkomulag heilbrigðismála eða kjaramál í víðu samhengi. Strákarnir vita alltaf best.

Afar lítil viðleitni er til að skynja sláttinn í samfélaginu, reyna að setja sig í spor láglaunafólks um land allt, hlusta á kennara, leikskólakennara, starfsfólk í heilbrigðisgeiranum og svo framvegis. Það þarf aldrei að leita samráðs við það fólk sem ekki er steypt í sama mót og þeir, með svipaðan bakgrunn og sömu sýn á úrlausnarefnin.

Þrátt fyrir alla skoðanagleðina og vissuna um að almenningur bíði með öndina í hálsinum eftir nýjustu ,,greiningunum“ um stöðuna, þá hafa þeir afar sjaldan kjark eða dug til að gagnrýna hækkanir sveitarfélaga á leikskólagjöldum, auknar álögur og sjúklingagjöld í velferðarkerfinu og svo framvegis, en ef breyta skal álögum á fyrirtæki, nú eða mögulega ræða veiðigjald á makríl þá eru þeir mættir, strákarnir.

Hugarfarið hefur opinberast með óvenju skýrum hætti undanfarina daga. Í umræðum um kjör félaga í Eflingu sem starfa hjá Reykjavíkurborg, hefur ekki vantað stóru orðin og heimsendaspárnar. Miðað við það allt er eiginlega óskiljanlegt að ekki sé búið að gefa út enn eina „gulu viðvörunina“ . En í öllum þessi flaumi er hvergi talað um kjör láglaunafólks, talað um þann sannleika að ekki er hægt að lifa á þeim, eða reynt að skilja þann grimma veruleika. Kannski er það af því að strákarnir þekkja ekki þann veruleika, á því hafa þeir engan áhuga, þar vita þeir ekki best.

Höfundur er framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×