Hvetur til stillingar en tekur ekki afstöðu til lögmætis aftökunnar á Soleimani Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 23. janúar 2020 12:04 Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra. Vísir/Vilhelm
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra kom sér undan því að svara spurningu Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, um hvort hann telji aftöku Bandaríkjahers á íranska herforingjanum Qasem Soleimani vera lögmæta. Guðlaugur Þór sagði íslensk stjórnvöld aftur á móti hvetja til stillingar. Logi beindi fyrirspurn til utanríkisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun. Af orðaskiptum Loga og Guðlaugs Þórs að dæma má ætla að líflegar umræður hafi skapast á fundi utanríkismálanefndar í gær þar sem staðan í Miðausturlöndum voru til umfjöllunar. „Það var mjög margt áhugavert sem kom fram í svörum hans þar sem ég get að sjálfsögðu ekki haft eftir hérna en sumt af því finnst mér að eigi erindi inn í þennan sal, og jafnvel til allrar þjóðarinnar. Það vekur til dæmis nokkra athygli að íslensk stjórnvöld hafa ekkert tjáð sig um lögmæti aftöku Bandaríkjanna á næstvaldamesta manni Írans,“ sagði Logi. Vísar hann þar til drónaárásar Bandaríkjamanna í byrjun árs þar sem herforinginn Qasem Soleimani var ráðinn af dögum. „Telur ráðherra að um lögmæta árás hafi verið að ræða?“ spurði Logi. Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar.Vísir/Vilhelm „Af því að háttvirtur vísar í fund utanríkismálanefndar í gær þá er það nú mín skoðun að það væri afskaplega mikilvægt að fulltrúar stjórnarandstöðunnar myndu segja við þjóðina það sem þeir segja á þeim fundum. Því að ég held að það eigi fullt erindi til þjóðarinnar,“ sagði Guðlaugur Þór meðal annars en svaraði spurningunni ekki beint. Hann sagði þó ekki rétt að íslensk stjórnvöld hafi ekki tjáð sig um málið. „Hér erum við að tala um alvöru mál á þessum vettvangi og nú er það þannig að við Íslendingar höfum ávallt verið í hópi með vestrænum þjóðum, við erum í Atlantshafsbandalaginu og skipum okkur í hóp með þeim þjóðum og í Evrópska efnahagssvæðinu og EFTA og svo framvegis, og ég held að það sé mjög mikilvægt að menn tali skýrt um það hver stefna þeirra flokka er þegar kemur að þeim málum. „Þau hafa algjörlega verið í anda þess sem að við sjáum á vina- og bandaþjóðum okkar, og þá er ég sérstaklega að vísa til Norðurlanda en ég get líka sömuleiðis vísað til annarra Evrópuþjóða. Þar höfum við verið og þar ætlum við að halda áfram að vera,“ sagði Guðlaugur Þór. Logi ítrekaði þá spurningu sína og lét heyra í sér úr sal þegar ráðherra veitti sitt síðara andsvar og kvartaði yfir því að hann svaraði ekki spurningunni. „Hvað varðar meint lögmæti þessarar árásar þá höfum við bara verið á nákvæmlega sama stað og þær þjóðir sem ég vísaði hér til og við höfum ekki verið að taka neina sérstaka afstöðu til þess að öðru leyti en því að við höfum hvatt til stillingar,“ sagði Guðlaugur Þór. Vill að forseti hvetji ráðherra til að svara spurningum Undir liðnum fundarstjórn forseta að loknum óundirbúnum fyrirspurnartíma, héldu þeir Logi og Guðlaugur Þór áfram að eiga í orðaskiptum. Hvatti Guðlaugur Þór þá til þess að efnt yrði til sérstakrar umræðu um málið á Alþingi. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, kvaddi sér einnig hljóðs um málið. „Hér var lögð fram fyrirspurn af hálfu háttvirts þingmanns Loga Einarssonar og það var ástæða til. Vegna þess að á fundi utanríkismálanefndar, sem hefur það hlutverk umfram aðrar nefndir þingsins, það er að vera í samráði og samvinnu og eiga samtal við utanríkisráðherra. En það er umhugsunarefni þegar það er sagt eitt á nefndarfundi um stefnu okkar í utanríkismálum og annað hér í þingsal, eða bara hlutum ekki svarað,“ sagði Þorgerður Katrín. „Ég hvet forseta til að ítreka það við ráðherra að svara spurningum þingmanna,“ sagði Þorgerður Katrín, um leið og hún studdi þá ósk sem fram hafði komið í máli Loga, um að ráðherra kæmi aftur fyrir nefndina til að ræða þessi mál.
Alþingi Íran Utanríkismál Tengdar fréttir Eftirmaður Soleimani heitir því að reka Bandaríkin frá Miðausturlöndum Talið er að hundruð þúsunda Írana hafi fylgt Soleimani herforingja til grafar í Teheran í dag. 6. janúar 2020 16:23 Tugir sagðir hafa troðist undir í jarðarför Soleimani Minnst 35 eru sagðir látnir og tugir slasaðir eftir gífurlegan troðning við jarðarför Qassem Soleimani, íransks hershöfðingja Bandaríkin réðu af dögum í síðustu viku. 7. janúar 2020 10:03 Misvísandi skilaboð frá Íran Forsvarsmenn herafla Íran segjast geta skotið hundruðum eldflauga til viðbótar við þær þrettán sem skotið var frá Íran á herstöðvar í Írak á aðfaranótt miðvikudags. 9. janúar 2020 15:15 Íranir skjóta eldflaugum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak Íranir hafa skotið eldflaugum á herstöð Bandaríkjanna, Al-Asad, í vesturhluta Írak. 8. janúar 2020 00:30 Skilgreinir bandaríska hermenn sem hryðjuverkamenn Íranska þingið hefur samþykkt lagafrumvarp þar sem bandaríska varnarmálaráðuneytið og hermenn eru skilgreind sem "hryðjuverkamenn“. 7. janúar 2020 07:43 Bandaríkin réðu einn valdamesta mann Írans af dögum Bandaríkjamenn réðu einn háttsettasta mann íranska byltingarvarðarins af dögum í Bagdad í Írak í nótt. 3. janúar 2020 06:42 Katrín segir leiðtoga heimsins þurfa að sýna ábyrgð Katrín Jakobsdóttir segir að koma þurfi í veg fyrir frekari stigmögnun spennu við Persaflóa. 4. janúar 2020 00:04 Trump um árás Írana: Segir að enn sem komið er sé „allt í lagi“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir "allt vera í góðu“ eftir að Íranir skutu eldflaugum á bandarískar herstöðvar í nótt. Forsetinn segir að verið sé að meta hvort að manntjón hafi orðið og eyðilegging, en að enn sem komið er væri ástandið í lagi. 8. janúar 2020 07:03 Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira
Eftirmaður Soleimani heitir því að reka Bandaríkin frá Miðausturlöndum Talið er að hundruð þúsunda Írana hafi fylgt Soleimani herforingja til grafar í Teheran í dag. 6. janúar 2020 16:23
Tugir sagðir hafa troðist undir í jarðarför Soleimani Minnst 35 eru sagðir látnir og tugir slasaðir eftir gífurlegan troðning við jarðarför Qassem Soleimani, íransks hershöfðingja Bandaríkin réðu af dögum í síðustu viku. 7. janúar 2020 10:03
Misvísandi skilaboð frá Íran Forsvarsmenn herafla Íran segjast geta skotið hundruðum eldflauga til viðbótar við þær þrettán sem skotið var frá Íran á herstöðvar í Írak á aðfaranótt miðvikudags. 9. janúar 2020 15:15
Íranir skjóta eldflaugum á herstöðvar Bandaríkjanna í Írak Íranir hafa skotið eldflaugum á herstöð Bandaríkjanna, Al-Asad, í vesturhluta Írak. 8. janúar 2020 00:30
Skilgreinir bandaríska hermenn sem hryðjuverkamenn Íranska þingið hefur samþykkt lagafrumvarp þar sem bandaríska varnarmálaráðuneytið og hermenn eru skilgreind sem "hryðjuverkamenn“. 7. janúar 2020 07:43
Bandaríkin réðu einn valdamesta mann Írans af dögum Bandaríkjamenn réðu einn háttsettasta mann íranska byltingarvarðarins af dögum í Bagdad í Írak í nótt. 3. janúar 2020 06:42
Katrín segir leiðtoga heimsins þurfa að sýna ábyrgð Katrín Jakobsdóttir segir að koma þurfi í veg fyrir frekari stigmögnun spennu við Persaflóa. 4. janúar 2020 00:04
Trump um árás Írana: Segir að enn sem komið er sé „allt í lagi“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir "allt vera í góðu“ eftir að Íranir skutu eldflaugum á bandarískar herstöðvar í nótt. Forsetinn segir að verið sé að meta hvort að manntjón hafi orðið og eyðilegging, en að enn sem komið er væri ástandið í lagi. 8. janúar 2020 07:03