Guðbjörg Jóna jafnaði sitt eigið met og Kristján Viggó bætti 23 ára gamalt met Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2020 16:50 Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hljóp á 24,05 sekúndum og jafnaði sitt met. Vísir/Sigurjón
ÍR-ingurinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir jafnaði eigin aldursflokkamet í 200 metra hlaupi kvenna á Stórmóti ÍR í dag þegar hún hljóp á 24,05 sekúndum. Guðbjörg Jóna vann 200 metra hlaupið en önnur var FH-ingurinn Þórdís Eva Steinsdóttir á 25,02 sekúndum. Guðbjörg Jóna jafnaði sitt eigið met því hún hefur nú hlaupið tvisvar á ferlinum á 24,05 sekúndum. Þetta er Íslandsmet í flokki 20 til 22 ára innanhúss en Guðbjörg Jóna setti metið fyrst 27. janúar í fyrra. Íslandsmet fullorðinna kvenna á Silja Úlfarsdóttir síðan hún hljóp á 23,79 sekúndum á móti í Bandaríkjunum 12. mars 2004. Ármenningurinn Kristján Viggó Sigfinnsson bætti met Einars Karls Hjartarsonar í flokki sextán til sautján ára þegar hann stökk 2,13 metra. Einar Karl var búinn að eiga metið í flokki sextán til sautján ára síðan að hann stökk 2,12 metra í febrúarmánuði árið 1997. Kristján Viggó er fæddur árið 2003 eða sex árum eftir að Einar Karl setti metið. Kristján Viggó átti líka góðar tilraunir við 2,15 metra og þarna er greinilega mikið efni á ferðinni. Íslandsmetið í flokknum fyrir ofan, 18 til 19 ára, er enn í eigu Einars Karls sem stökk 2,20 árið 1999.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Fleiri fréttir Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Sjá meira