Bóksalan sem tekur til ársins 2019 er fyrirliggjandi en hér neðar má sjá bóksölulista; Vísir birtir lista yfir þær 50 bækur sem mest seldust á árinu og má sá listi heita lýsandi fyrir bókmenntasmekk þjóðarinnar.
Sé miðað við þann lista má ætla að um þriðjungur íslenskrar bóksölu sé barna- og ungmennabækur, þriðjungur skáldverk og ævisögur og loks þriðjungur fræðibækur og bækur almenns eðlis. Barnabókahöfundurinn og leikarinn Ævar Þór Benediktsson á hvorki meira né minna en fjórar bækur á þeim lista. Sem segir sína sögu. Hann má vel við una sem og söngkonan Birgitta Haukdal en tvær bóka hennar sem eru á listanum.
Ár hinna íslensku skáldverka
Bryndís Loftsdóttir framkvæmdastjóri hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda segir að óvenjulega sterk útgáfa íslenskra skáldverka einkenndi fyrir síðasta ár:
„Af 20 mest seldu bókum síðasta árs voru 8 þeirra skáldverk íslenskra höfunda. Glæpasagnahöfundarnir Arnaldur, Yrsa og Ragnar áttu vinsælustu skáldsögurnar, rétt eins og árið 2018. Á topplista ársins 2019 komast hins vegar engar þýddar skáldsögur að þessu sinni og aðeins ein ævisaga á móti fjórum í fyrra.“

Bryndís segir það einnig vekja athygli að einungis einn kvenhöfundur, Yrsa Sigurðardóttir, er á meðal 10 mest seldu höfunda ársins. „Hlutfall kynjanna er þó hnífjafnt þegar litið er til íslenska skáldverkalistans, hallinn virðist frekar koma úr öðrum áttum, svo sem úr flokki fræðibóka og bóka almenns eðlis. Þá er einnig athyglisvert að sjá hvað íslenskir kvenrithöfundar eru sterkir í ungmennabókum en strákarnir halda hins vegar toppsætum skáldverka fyrir yngri börn þó konur séu í yfirgnæfandi meirihluta barnabókarithöfunda.“
Um tímann, vatnið og keto
Vísir birti í aðdraganda og í sjálfu jólabókaflóðinu lista yfir mest seldu bækur hverrar viku um sig. Jafnframt var birtur listi yfir mestu uppsafnaða sölu bóka. Lengstum sat Gunnar Már Sigfússon með Keto-bók sína á toppnum og vildu ýmsir velunnarar bókarinnar illa una því fyrir hönd bókarinnar sem slíkrar. En Arnaldur náði að velta Gunnari Má úr sessi á lokametrunum og bjarga þar með heiðri bókmenntaþjóðarinnar, eftir því hvernig á það er litið. Bryndís veltir því fyrir sér hvort Keto-lífsstíllinn samræmist því að sporna við hlýnun jarðar?
„Kannski einhver geti skrifað um tímann, vatnið og keto,“ spyr Bryndís og gerir að gamni sínu.
Áður en við vindum okkur í sjálfa listana er vert að geta þess að um er að ræða metsölulista Félags íslenskra bókaútgefenda, sem hafa verið tekir saman allt frá árinu 1995. Listinn mælir sölu íslenskra bóka og er byggður á upplýsingum frá bóksölum, net- og dagdagvöruverslunum sem selja bækur.
Þátttakendur í gerð listans eru: A4, Bókabúð Máls og menningar, Bókabúð Þjóðminjasafnsins, Bóksala stúdenta, Bónus, Forlagsverslunin, Hagkaup, Heimkaup, Kaupfélag Skagfirðinga og Samkaup.
Bóksölulistinn 1. janúar - 31. desember 2019
Topplistinn – 50 mest seldu titlarnir
- Tregasteinn - Arnaldur Indriðason
- Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon
- Þögn - Yrsa Sigurðardóttir
- Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson
- Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason
- Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson
- Hvítidauði - Ragnar Jónasson
- Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson
- Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.
- Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason
- Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir
- Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir
- Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvinsson
- Kokkáll - Dóri DNA
- Aðventa - Stefán Máni
- Léttir réttir Frikka - Friðrik Dór Jónsson
- Saknað: íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall
- Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason
- Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring
- Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
- Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal
- Slæmur pabbi - David Walliams
- Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson
- Verstu börn í heimi 3 - David Walliams
- Dagbók Kidda klaufa 11: Allt á hvolfi - Jeff Kinney
- Gullbúrið - Camilla Läckberg
- Kjarval - maðurinn sem fór sínar eigin leiðir - Margrét Tryggvadóttir
- Bréf til mömmu - Mikael Torfason
- Helköld sól - Lilja Sigurðardóttir
- Jakobína, saga skálds og konu - Sigríður K. Þorgrímsdóttir
- Hnífur - Jo Nesbo
- Jólasyrpa 2019 – Walt Disney
- Á eigin skinni - Sölvi Tryggvason
- Fimmaurabrandarar – Fimmaurabrandarafjelagið
- Randver kjaftar frá - Jeff Kinney
- Í eldhúsi Evu - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
- Barist í Barcelona – Gunnar Helgason
- Sumareldhús Flóru - Jenny Colgan
- Fjarþjálfun - Indíana Nanna Jóhannsdóttir
- Prjónastund - Lene Holme Samsö
- Stórhættulega stafrófið - Ævar Þór Benediktsson
- Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein
- Halaveðrið mikla - Steinar J. Lúðvíksson
- Ég elska einhyrninga – Unga ástin mín
- Þín eigin saga: Draugagangur - Ævar Þór Benediktsson
- Svört perla - Liza Marklund
- Bestu limrurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson
- Óvænt endalok - Ævar Þór Benediktsson
- Nornin - Hildur Knútsdóttir
Íslensk skáldverk
- Tregasteinn - Arnaldur Indriðason
- Þögn - Yrsa Sigurðardóttir
- Hvítidauði - Ragnar Jónasson
- Innflytjandinn - Ólafur Jóhann Ólafsson
- Tilfinningabyltingin - Auður Jónsdóttir
- Aðferðir til að lifa af - Guðrún Eva Mínervudóttir
- Kokkáll - Dóri DNA
- Aðventa - Stefán Máni
- Helköld sól - Lilja Sigurðardóttir
- Svínshöfuð - Bergþóra Snæbjörnsdóttir
- Stelpur sem ljúga - Eva Björg Ægisdóttir
- Sextíu kíló af sólskini - kilja - Hallgrímur Helgason
- Delluferðin - Sigrún Pálsdóttir
- Korngult hár, grá augu - Sjón
- Sara - Árelía Eydís Guðmundsdóttir
- Boðorðin - Óskar Guðmundsson
- Barnið sem hrópaði í hljóði - Jónína Leósdóttir
- Staða pundsins - Bragi Ólafsson
- Selta, apókrýfa úr ævi landlæknis - Sölvi Björn Sigurðsson
- Kvika - Þóra Hjörleifsdóttir
Þýdd skáldverk
- Gullbúrið - Camilla Läckberg
- Hnífur - Jo Nesbø
- Sumareldhús Flóru - Jenny Colgan
- Svört perla - Liza Marklund
- Jólasysturnar - Sarah Morgan
- Húðflúrarinn í Auschwitz - Heather Morris
- Kastaníumaðurinn - Sören Sveistrup
- Ströndin endalausa - Jenny Colgan
- Engin málamiðlun - Lee Child
- Gamlinginn sem hugsaði með sér að hann væri farinn að hugsa of mikið - Jonas Jonasson
Ljóð & limrur
- Bestu limrurnar - Ragnar Ingi Aðalsteinsson ritstýrði
- Til í að vera til - Þórarinn Eldjárn
- Leðurjakkaveður - Fríða Ísberg
- Heimskaut - Gerður Kristný
- Dimmumót - Steinunn Sigurðardóttir
- Til þeirra sem málið varðar - Einar Már Guðmundsson
- Stökkbrigði - Hanna Ólafsdóttir
- Ljóð 2007 - 2018 - Valdimar Tómasson
- Edda - Harpa Rún Kristjánsdóttir
- Mislæg gatnamót - Þórdís Gísladóttir
Barnabækur - ljóð og skáldverk
- Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson
- Orri óstöðvandi - Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson
- Leikskólalögin okkar - Jón Ólafsson ofl.
- Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason
- Gamlárskvöld með Láru - Birgitta Haukdal
- Lára fer í sveitina - Birgitta Haukdal
- Slæmur pabbi - David Walliams
- Verstu börn í heimi 3 - David Walliams
- Dagbók Kidda klaufa 11: Allt á hvolfi - Jeff Kinney
Barnafræði- og handbækur
- Vigdís - Bókin um fyrsta konuforsetann - Rán Flygenring
- Kjarval - maðurinn sem fór sínar eigin leiðir - Margrét Tryggvadóttir
- FimmaurabrandararFimmaurabrandarafjelagið - Bókaútgáfan Hólar
- Ég elska einhyrninga - Unga ástin mín
- Jólaföndur - Unga ástin mín
- Spurningabókin 2019 - Guðjón Ingi Eiríksson
- Fótboltaspurningar 2019 - Bjarni Þór Guðjónsson og Guðjón Ingi Eiríksson
- Hvolpasveitin - Fyrsta púslbók - Bókabeitan
- Hvolpasveitin - Leitið og finnið - Bókabeitan
- Brandarar og gátur - Huginn Þór Grétarsson
Ungmennabækur
- Nornin - Hildur Knútsdóttir
- Ég er svikari - Sif Sigmarsdóttir
- Fjallaverksmiðja Íslands - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Ungfrú fótbolti - Brynhildur Þórarinsdóttir
- Hvísl hrafnanna 3 - Malene Sölvsten
- Villueyjar - Ragnhildur Hólmgeirsdóttir
- Dulmálsmeistarinn - Bobbie Peers
- Hin ódauðu - Johan Egerkrans
- PAX 2 - Uppvakningurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson
- PAX 3 - Útburðurinn - Asa Larsson, Ingela Korsell og Henrik Jonsson
Fræði og almennt efni
- Keto - hormónalausnin - Gunnar Már Sigfússon
- Um tímann og vatnið - Andri Snær Magnason
- Útkall - Tifandi tímasprengja - Óttar Sveinsson
- Síldarárin 1867-1969 - Páll Baldvin Baldvinsson
- Léttir réttir Frikka - Friðrik Dór Jónsson
- Saknað - íslensk mannshvörf - Bjarki H. Hall
- Kindasögur - Guðjón Ragnar Jónasson
- Á eigin skinni - Sölvi Tryggvason
- Í eldhúsi Evu - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
- Fjarþjálfun - Indíana Nanna Jóhannsdóttir
Ævisögur
- Björgvin Páll Gústavsson - Án filters - Björgvin Páll Gústavsson og Sölvi Tryggvason
- Bréf til mömmu - Mikael Torfason
- Jakobína saga skálds og konu - Sigríður K. Þorgrímsdóttir
- Klopp - Allt í botn - Raphael Honigstein
- Óstýrláta mamma mín … og ég - Sæunn Kjartansdóttir
- Gústi - alþýðuhetjan, fiskimaðurinn og kristniboðinn - Sigurður Ægisson
- Með sigg á sálinni - Einar Kárason
- Vængjaþytur vonarinnar - Margrét Dagmar Ericsdóttir
- Systa - bernskunnar vegna - Vigdís Grímsdóttir
- HKL ástarsaga - Pétur Gunnarsson