Vegna áframhaldandi slæmrar veðurspár hefur Icelandair tekið þá ákvörðun að flýta níu brottförum frá Keflavík sem áætlaðar voru í fyrramálið, fimmtudaginn, 9. janúar. Óveðrið sem gekk yfir landið í gær hafði töluverð áhrif á flugáætlanir fyrirtækisins þar sem aflýsa þurfti fjölda flugferða.
Áhrifin nú eru þau að eftirfarnadi flugi verður flýtt til miðnættis í kvöld en innritun opnar kl. 21:00 í kvöld, miðvikudaginn 8. janúar og brottfarir verða rétt eftir miðnætti í kvöld (9. janúar), að því er segir í tilkynningu Icelandair:
FI532 Keflavík - Munchen 00:20
FI500 Keflavík - Amsterdam 00:30
FI568 Keflavík - Zurich 01:20
FI520 Keflavík - Frankfurt 00:05
FI554 Keflavík - Brussel 00:05
FI306 Keflavík - Stokkhólmur 00:10
FI204 Keflavík - Kaupmannahöfn 00:10
FI206 Keflavík - Kaupmannahöfn 00:20
FI342 Keflavík - Helsinki 00:10
Um er að ræða tæplega 1700 farþega.
Jafnframt er líklegt að brottfarartímar á eftirfarandi flugi sem einnig er áætlað til Evrópu í fyrramálið muni breytast. Eru farþegar vinsamlegast beðnir um að fylgjast með flugupplýsingum á heimasíðu Icelandair sem verða uppfærðar um leið og breytingar liggja fyrir.
Þar geta farþegar jafnframt uppfært netföng og símanúmer þannig að hægt sé að koma skilaboðum til þeirra hratt og örugglega.
FI318 Keflavík - Osló
FI440 Keflavík - Manchester
FI416 Keflavík - Dublin
FI450 Keflavík – London Heathrow
FI542 Keflavík - París
FI430 Keflavík – Glasgow
FI470 Keflavík – London Gatwick
Um er að ræða rúmlega 1300 farþega.
Innlent