Leipzig í undanúrslit í fyrsta sinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. ágúst 2020 21:00 Tyler Adams (nr. 14) skoraði sigurmark RB Leipzig gegn Atlético Madrid. getty/Lluis Gene RB Leipzig er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í fyrsta sinn eftir sigur á Atlético Madrid, 2-1, í kvöld. Varamaðurinn Tyler Adams skoraði sigurmark Leipzig þegar tvær mínútur voru eftir. Leipzig mætir Paris Saint-Germain í undanúrslitunum á þriðjudaginn. Leikurinn fer fram á Estadio da Luz, heimavelli Benfica í Lissabon. Leipzig var meira með boltann í fyrri hálfleik en liðin fengu ekki mörg færi. Í seinni hálfleiknum færðist meira fjör í leikinn. Leipzig náði forystunni á 50. mínútu. Eftir góða sókn sendi Marcel Sabitzer fyrir frá hægri á Dani Olmo sem skallaði boltann í fjærhornið. Diego Simeone, knattspyrnustjóri Atlético, setti Félix inn á fyrir Héctor Herrera á 59. mínútu. Portúgalinn kom með aukinn kraft í sóknarleik Atlético og þegar 20 mínútur voru eftir braut Lukas Klostermann á honum innan vítateigs. Félix fór sjálfur á punktinn, skoraði og jafnaði í 1-1. Það var svo annar varamaður, Adams, sem skoraði markið sem réði úrslitum. Angelino átti góða sendingu á Adams sem átti skot sem fór af Stefan Savic og í netið. Þetta var fyrsta mark Adams fyrir Leipzig og það gat ekki komið á betri tíma. Atlético gerði hvað það gat til að jafna metin og tryggja sér framlengingu en allt kom fyrir ekki og Leipzig fagnaði sigri og sæti í undanúrslitunum. Sýnt verður beint frá öllum leikjunum sem eftir eru í Meistaradeild Evrópu á Stöð 2 Sport. Keppni lýkur með úrslitaleiknum í Lissabon 23. ágúst. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum. Meistaradeild Evrópu
Sýnt verður beint frá öllum leikjunum sem eftir eru í Meistaradeild Evrópu á Stöð 2 Sport. Keppni lýkur með úrslitaleiknum í Lissabon 23. ágúst. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti