Innlent

Átta til viðbótar greindust með veiruna innanlands

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Frá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.
Frá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Átta greindust með kórónuveiruna á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans í gær. Tveir greindust við landamæraskimun og bíða niðurstöðu mótefnamælingar.

Því eru 80 í einangrun eins og er samkvæmt nýjustu tölum á Covid.is. Fólki í sóttkví fjölgar um 101 og eru því 670 í sóttkví í dag en í gær voru 569.

Einn liggur á sjúkrahúsi vegna Covid-19 en viðkomandi er ekki á gjörgæslu.

Töluverður fjöldi sýna var tekinn í gær: 914 hjá Íslenskri erfðagreiningu, 291 á sýkla- og veirufræðideild og 2.035 í landamæraskimun.

Boðað hefur verið til upplýsingafundar klukkan 14 í dag þar sem þau Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, Alma D. Möller landlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fara yfir stöðu mála í kórónuveirufaraldrinum hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×