Geimfarar stefna aftur til jarðar í SpaceX-ferju Kjartan Kjartansson skrifar 2. ágúst 2020 09:02 Bob Behnken um borð Dragon-geimferju SpaceX sem lá þá við Alþjóðlegu geimstöðina. Hann og félagi hans Doug Hurley eru nú lagðir af stað heim til jarðar. AP/NASA
Tveir bandarískir geimfarar sem voru þeir fyrstu til að fara út í geim með einkafyrirtækinu SpaceX eru lagðir af stað heim til jarðar frá Alþjóðlegu geimstöðinni. Þeirra er að vænta í kvöld og gangi allt að óskum verður þetta í fyrsta skipti sem bandarískt geimfar flytur menn út í geim og til baka frá því að geimskutluáætlunin leið undir lok fyrir tæpum áratug. Lendingarstaður þeirra Doug Hurley og Bob Behnken verður í Mexíkóflóa utan við vesturströnd Flórída, fjarri leið fellibyljarins Isaiasar sem stefnir á austurströnd ríkisins, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Áætluð lending er klukkan 18:40 að íslenskum tíma. Ferð tvímenninganna er söguleg því þetta er í fyrsta skipti sem menn fara út í geim með einkafyrirtæki. Þetta er jafnframt fyrsta bandaríska mannaða geimferðin frá því að síðasta geimskutlan lenti árið 2011. Síðan þá hafa Bandaríkjamenn þurft að leigja sér far um borð í rússneskum Soyuz-geimferjum til að komast til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar á braut um jörðu. Bandaríska geimvísindastofnunin NASA réði einnig Boeing til að smíða ferju til að koma geimförum hennar til geimstöðvarinnar. Boeing hefur lent í töfum vegna tæknilegra vandamála.
SpaceX Geimurinn Tækni Alþjóðlega geimstöðin Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Fleiri fréttir Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira