Segist hafa verið týndur sem leikmaður og manneskja Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. júlí 2020 09:31 Lingard fagnar eina deildarmarki sínu á tímabilinu. EPA-EFE/Oli Scarff
Jesse Lingard, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, hefur ekki verið upp á sitt besta inn á fótboltavellinum undanfarna 12 mánuði eða svo. Hann segist hafa verið týndur sem bæði leikmaður og manneskja. Lingard, sem var fastamaður í enska landsliðinu á HM í Rússlandi sumarið 2018, byrjaði aðeins níu deildarleiki fyrir Manchester United á tímabilinu en hann kom þó 13 sinnum af varamannabekk liðsins. Hans eina mark í deildinni kom í síðasta leik tímabilsins á sunnudaginn var er liðið lagði Leicester City 2-0 og tryggði sér þar með sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Markið kom á áttundu mínútu uppbótartíma. Hinn 27 ára gamli Lingard opnaði sig varðandi vandræði sín síðasta árið á á Instagram-síðu sinni eftir sigurinn gegn Leicester. Þar segir hann að tímabilið hafi verið mjög erfitt út af margvíslegum ástæðum. View this post on Instagram Im starting with the man in the mirror im asking him to change his ways. This season has been difficult for so many reasons. I lost who I was as a player and person, but I never wanted to give up, I knew who I really was on and off the pitch and knew that having been there before I could get there again. This meant working harder than I d ever done before and trusting in those around me that they knew how to best help me achieve that. I know the fans have been frustrated but in all this time my love for this club and everyone connected to it has never left me. This team, this club is my family and I will continue to keep working harder than ever to help this team achieve its goals. #MUFamily A post shared by JLingz (@jesselingard) on Jul 28, 2020 at 8:32am PDT Mamma hans varð alvarlega veik og því hefur Lingard þurft að sjá um yngri systkini sín þar sem hún er ófær um það. Einnig er afi hans veikur og faðir hans virðist einfaldlega ekki vera inn í myndinni. Því fellur það á Lingard að sjá um systkini sín, mæti á foreldrafundi í skólanum og því um líkt. Þá á hann eins árs gamla stelpu en hann er ekki í sambúð með barnsmóður sinni. Í færslunni á Instagram segist Lingard einfaldlega hafa misst sjónar á því hver hann væri sem leikmaður og manneskja. Hann hafi þó ekki viljað gefast upp. Þessi litríki karakter átti góðu gengi að fagna undir stjórn José Mourinho og vann sér þannig inn byrjunarliðssæti í enska landsliðinu. „Ég veit að stuðningsmenn Manchester United hafa verið pirraðir, en ást mín á félaginu og öllum tengdum því er enn til staðar. Þetta lið, þetta félag er fjölskylda mín og ég mun halda áfram að gefa allt sem ég á til að ná þeim markmiðum sem það hefur sett,“ sagði Lingard. Eins og áður kom fram þá hefur Lingard ekki verið upp á sitt besta og er talið að hann gæti verið seldur frá félaginu í sumar. Eru Newcastle United og West Ham United talin líklegust til að kaupa hinn 27 ára gamla Englending ef Ole Gunnar Solskjær ákveður að hann hafi engin not fyrir hann. Mögulega fær hann sjaldséð tækifæri til að láta ljós sitt skína í Evrópudeildinni en United er með sigurstranglegri liðum þar. Keppnin hefst að nýju þann 5. ágúst en Man Utd er svo gott sem öruggt með sæti í 8-liða úrslitum eftir 5-0 sigur á LASK Linz frá Austurríki í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum.
Fótbolti Enski boltinn Tengdar fréttir Beið þar til á 98. mínútu í lokaleiknum með að skora fyrsta mark tímabilsins Jesse Lingard hafði ekki skorað né lagt upp í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, þar til hann skoraði gegn Leicester í dag á 98. mínútu í lokaumferð deildarinnar. 26. júlí 2020 17:45 United kom sér í Meistaradeild Evrópu Manchester United leikur í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eftir að liðið vann Leicester 2-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. 26. júlí 2020 16:55 Mest lesið Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Körfubolti Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Auglýsa leik kvöldsins með minnsta skilti sem fyrirfinnst Körfubolti Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Uppgjörið og viðtöl: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Enski boltinn Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Fótbolti Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Uppgjörið: Grindavík - Keflavík 101-91 | Gula dreymir um heimavallarrétt Körfubolti Fleiri fréttir Asensio skaut Villa áfram Lýsandi Sky Sports baðst afsökunar á ummælum um United UEFA segir Chelsea vera með dýrasta lið sögunnar Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Segir glottandi Carragher að fara til fjandans Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Hamrarnir héldu Refunum í fallsæti Echeverri má loks spila fyrir Man City „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Chelsea skrapaði botninn með Southampton Segir að Maresca verði rekinn ef næstu tveir leikir vinnast ekki Þolinmæðin á Højlund nánast á þrotum Carragher kallaði Ferdinand trúð United hættir að bjóða upp á frían hádegismat Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Sjá meira
Beið þar til á 98. mínútu í lokaleiknum með að skora fyrsta mark tímabilsins Jesse Lingard hafði ekki skorað né lagt upp í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð, þar til hann skoraði gegn Leicester í dag á 98. mínútu í lokaumferð deildarinnar. 26. júlí 2020 17:45
United kom sér í Meistaradeild Evrópu Manchester United leikur í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð eftir að liðið vann Leicester 2-0 í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. 26. júlí 2020 16:55
Uppgjörið og viðtöl: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Álftanes - Tindastóll 102 - 89 | Fimmti sigur Álftaness í röð kom gegn toppliðinu Tindastóli Körfubolti