Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Aron Guðmundsson skrifar 10. febrúar 2026 23:18 Lindsey Vonn datt illa í keppnisbrautinni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn síðastliðinn. Vísir/Getty Alan Kildow, faðir bandarísku skíðadrottningarinnar Lindsey Vonn segir að ef það væri undir sér komið myndi dóttir hans ekki keppa aftur á skíðum. Vonn meiddist illa í keppni á Vetrarólympíuleikunum á sunnudaginn síðastliðinn.
Á fleygiferð í brautinni á sunnudaginn flæktist hægri handleggur Vonn í keppnishliði með þeim afleiðingum að hún missti stjórn á ferð sinni og féll harkalega til jarðar. Við það fótbrotnaði Vonn illa en miklar efasemdir höfðu verið uppi um þátttöku hennar á leikunum sökum þess að aðeins viku fyrir þá sleit hún krossband. Meðvituð um að þetta gætu verið hennar síðustu Ólympíuleikar ákvað hin 41 árs gamla Vonn að mæta til leiks á leikunum eftir að hafa ráðfært sig við lækna og sérfræðinga en gamanið entist ekki lengi. Í færslu sem Vonn birti á samfélagsmiðlum í gær, eftir að hafa gengist undir tvær aðgerðir vegna fótbrotsins, sagðist skíðadrottningin ekki sjá eftir neinu en leiða má líkur að því að keppnisferli hennar gæti verið lokið. Faðir hennar væri hið minnsta til í að hún myndi ekki keppa aftur. Hann tjáir sig um dóttur sína í viðtali við AP fréttaveituna: „Hún er orðin 41 árs og þetta eru endalokin á hennar keppnisferli,“ sagði faðir Vonn, Alan Kildow. „Það verða ekki fleiri keppnir á döfinni hjá henni svo lengi sem ég hef eitthvað um það að segja.“ Alan, auk systkina Lindsey Vonn hafa verið við hlið hennar á sjúkrahúsinu í Treviso á Ítalíu þar sem að hún gekkst undir aðgerðir vegna fótbrotsins. „Hún er sterkur einstaklingur. Hún þekkir líkamlega sársaukann og skilur aðstæðurnar sem hún er nú í. Hún er að takast á við þær bætur en ég átti von á. Hún er mjög, mjög sterk.“
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrír líklegustu dottnir úr leik „Betra liðið tapaði” „Ég er ríkmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Alcaraz fann til með Sinner Doncic flytur félag til Rómar „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Óskar Hrafn á hælana? Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Brann kveður Jón Dag Óskar Hrafn framlengir í Vesturbæ Þurfti að yfirgefa liðið fyrir úrslitaleikinn Tottenham bætir í vörnina Fjórir kylfingar fóru holu í höggi fyrstu vikuna í Leirdalnum Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Árangurinn vinnur gegn kvíðanum Sjá meira