„Eins gott að Guðjón komist í liðið því annars biður hann bara um að fá að fara eitthvað annað“ Anton Ingi Leifsson skrifar 6. júlí 2020 09:30 Reynir og Davíð voru spekingar Pepsi Max-stúkunnar í gærkvöldi. vísir/s2s
Reynir Leósson, einn spekingur Pepsi Max-deildarinnar, segir að það sé mikilvægt að Guðjón Pétur Lýðsson fái að spila hjá Stjörnunni því annars skipti hann brátt um lið á nýjan leik. Miðjumaðurinn öflugi gekk í raðir Stjörnunnar að láni á lokadegi félagaskiptagluggans en félagaskiptin vöktu mikla athygli. Álftnesingurinn hafði verið á mála hjá Breiðablik. Stjörnumenn eru í sóttkví og það var m.a. til umræðu í Pepsi Max-stúkunni í gær en nágranni Davíðs Þórs Viðarssonar er einmitt annar þjálfari Stjörnunnar, Ólafur Jóhannesson. „Í þau skipti sem ég hef hitt hann, í góðri fjarlægð, þá hefur hann verið léttur á því. Það vantar ekkert upp á það. Ég held að Stjörnumenn séu ekkert sáttir með að spila alla þessa leiki í ágúst og auðvitað verður mikið álag á þeim en eins og þetta er búið að spilast þá eru þeir sáttir. Öll toppliðin hafa verið að missa stig og þeir hljóta að vera mjög ánægðir með það,“ sagði Davíð. Davíð reiknar með að miðja Stjörnunnar verði þeir Eyjólfur Héðinsson, Alex Freyr Hauksson og svo Guðjón Pétur. Við það færist Hilmar Árni út á kant. „Mér finnst það ekkert ólíklegt að Alex og Eyjólfur verði varnasinnaðir og Guðjón Pétur fyrir framan þá,“ sagði Davíð en Reynir var ekki sammála. „Auðvitað geta góðir fótboltamenn alltaf spilað saman en ég er ekki keyptur á að þeir verði bæði með Eyjólf og Guðjón Pétur. Mér finnst þeir líkir leikmenn að mörgu leyti og mér finnst Guðjón Pétur virka betur sem átta. Ekki upp í tíunni.“ „Það er eins gott að Guðjón Pétur komist í liðið því annars biður hann bara um að fá að fara eitthvað annað,“ bætti Reynir við. „Við sögðum það í upphitunarþættinum fyrir mótið að það myndi stefna í vesen og hann kom sjálfur og sagði að hann myndi setja sokk upp í Hjörvar [Hafliðason, fjölmiðlamann] eða einhvern, því hann yrði kominn í liðið eftir smá tíma.“ Klippa: Pepsi Max-stúkan - Hvað gerir Stjarnan þegar hún losnar úr sóttkví?
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max stúkan Stjarnan Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira