Lífið

Söngdívan og tískutáknið Debbie Harry 75 ára í dag

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Debbie Harry fagnar 75 ára afmæli í dag 1. júlí. 
Debbie Harry fagnar 75 ára afmæli í dag 1. júlí.  Getty

Söngdívan og eitt stærsta tískutákn tónlistarsögunnar, Debbie Harry, fagnar 75 ára afmæli í dag þann 1. júlí. Debbie gerði garðinn frægan sem söngkona new-wave hljómsveitarinnar Blondie á sjöunda áratugnum. 

Debbie vakti mikla athygli fyrir bæði sterkan og persónulegan stíl en útlit hennar varð fljótt mjög vinsælt myndefni frægra ljósmyndara.

Hún var ein af fyrstu konunum til að vera í fronti fyrir rokkhljómsveit á þessum tíma og var hún meðal annars ein af þeim sem veitti listamanninum Andy Warhool mikinn innblástur. 

 

Kveðjum og lofum hefur ringt yfir söngkonuna á samfélagsmiðlum í dag og hefur fjöldinn allur af greinum birst um líf hennar og störf. Tímaritið Far Out tók saman lista yfir 10 vinsælustu lög hljómsveitarinnar. 

1. Heart of Glass

Debbie og Chris, gítarleikari hljómsveitarinnar sömdu lagið Heart Of Glass sem er eitt þekktasta og vinsælasta lag hljómsveitarinnar. Lagið kom út árið 1978 og er af plötunni Parallel Lines. 

2. Call Me

Lagið var samið í samstarfi við ítalska tónlistarmannin Giorgio Moroder og var þemalag kvimyndarinnar American Gigolo sem kom út árið 1980. Lagið var sex vikur í röð á Billboard Hot 100 og fjórða vinsælasta lagið í Bandaríkjunum yfir allt árið. 

3. Atomic

Lagið er þriðja lag plötunnar Eat to the Beat sem kom út árið 1979. Debbie Harry og hljómborðsleikari hljómsveitarinnar, Jimmy Destri, sömdu lagið saman. 

4. Rapture

Lagið Rapture kom út árið 1980 og er af plötunni Autoamerican. Rapture er meðal annars þekkt fyrir að að vera fyrsta lagið sem innihélt kafla með rappi og komst í fyrsta sæti í Bandaríkjunum. 

5. Dreaming

Talið eitt af vanmetnustu lögum hljómsveitarinnar. Lagið kom út árið 1980 og er af plötunni Eat to the Beat. 

6. One Way or Another

Debbie samdi lagið í með Nigel Harrison, hljómborðsleikara hljómsveitarinnar. Textann samdi Debbie og segir hún hann vera innblásinn af fyrrverandi kærasta hennar sem hún segir hafa setið um sig eftir sambandsslitin. 

7. Hanging on the Telephone

Lagið var samið af tónlistarmanninum Jack Lee og var fyrst flutt af hljómsveitinni The Nerves. Lagið endaði svo á plötunni Parallel Lines sem kom út árið 1978. 

8. X Offender

Upphaflega hét lagið Sex Offender og var samið af bassaleikara hljómsveitarinnar, Gary Valentine, en hann samdi lagið um 18 ára strák sem var handtekinn fyrir að sofa hjá yngri kærustu sinni.  Debbie breytti svo textanum og lét lagið fjalla um vændiskonu sem varð ástfangin af lögreglumanni eftir að hafa handtekið hana. 

9. Rip Her To Shreds

Lagið kom út árið 1977 og segir Debbie lagið fjalla um hvaða áhrif slúðurdálkar blaða geta haft á líf fólks. Lagið var samið af Debbie Harry og Chris Stein. 

10. Maria

Lagið Maria var eitt stærsta come-back lag hljómsveitarinnar en lagið er af plötunni No Exit sem kom út árið 1999 og var lagið þeirra fyrsta nýja lag í heil 15 ár. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.