Erlent

Varð hræddur og skráði húsið á sig

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Anne-Elisabeth Hagen hvarf af heimili sínu og eiginmanns síns, Tom Hagen, 31. október 2018.
Anne-Elisabeth Hagen hvarf af heimili sínu og eiginmanns síns, Tom Hagen, 31. október 2018. Samsett/EPA

Norski auðkýfingurinn Tom Hagen kveðst hafa orðið hræddur um að honum yrði úthýst af heimili sínu og eiginkonu sinnar, Anne-Elisabeth Hagen, á tíunda áratug síðustu aldar. Hann hafi þess vegna fengið kaupmála þeirra hjóna breytt og látið skrá húsið alfarið á sitt nafn. Þetta hefur norska dagblaðið VG upp úr yfirheyrslum lögreglu yfir auðkýfingnum.

Tom Hagen er grunaður um að hafa banað konu sinni eða átt aðild að andláti hennar. Hann var handtekinn í lok apríl en sleppt úr varðhaldi í byrjun maí – og hefur gengið laus síðan. Áður hefur komið fram að kaupmáli hjónanna er liður í rannsókn lögreglu á hvarfi Anne-Elisabeth, sem ekkert hefur spurst til síðan 31. október 2018.

Tom og Anne-Elisabeth gengu í hjónaband árið 1987 og gerðu þá með sér kaupmála. Þau skrifuðu svo bæði undir breytingu á honum í desember 1993, þar sem heimili þeirra að Sloravejen 4 í Lørenskógi var skráð alfarið á nafn Toms Hagen.

Heimili Hagen-hjónanna í Lørenskógi. EPA/Vidar Ruud

Þegar hefur komið fram að umræddur kaupmáli þyki svo ósanngjarn í garð Anne-Elisabeth að hann haldi ekki fyrir dómi. Þannig hafa norskir sérfræðingar haldið því fram að við skilnað ætti Anne-Elisabeth tilkall til mun umfangsmeiri eigna en kveður á um í kaupmálanum.

Nú greinir VG frá því að Tom Hagen hafi útskýrt fyrir lögreglu í skýrslutöku hvers vegna hann skráði húsið á sig. Þau hjónin hafi glímt við erfiðleika í hjónabandinu á tíunda áratug síðustu aldar og því hafi hann orðið hræddur um að honum yrði „kastað á dyr“, þar sem Anne-Elisabeth hafi verið skráð fyrir húsinu. Þess vegna hafi hann ákveðið að færa eignarhaldið yfir á sitt nafn. Hann fullyrti jafnframt að Anne-Elisabeth hefði verið meðvituð um ráðahaginn.

Greint var frá því í síðustu viku að skilnaðarpappírar hafi fundist við rannsókn á heimilinu, sem aðeins Anne-Elisabeth hafði skrifað undir. Samkvæmt heimildum VG eru skjölin nokkurra ára gömul og voru gefin út talsvert áður en Anne-Elisabeth hvarf af heimilinu þann 31. október 2018.

Fram hefur komið að Anne-Elisabeth sagði nokkrum nákomnum sér að hjónaband þeirra Toms væri stormasamt. Þá hafa norskir fjölmiðlar greint frá því að ýmislegt bendi til þess að hún hafi viljað skilja við mann sinn áður en hún hvarf.


Tengdar fréttir

Birta hótunarbréfið í fyrsta sinn

Norska dagblaðið VG birti í dag hótunarbréf sem auðjöfurinn Tom Hagen segir að hann hafi fengið sent eftir að eiginkona hans, Anne-Elisabeth Hagen, hvarf af heimili þeirra hjóna í Lorenskógi árið 2018.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×