Lífið

Ásgeir Kolbeins les upp ógeðsleg ummæli um sig

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ásgeir er umsjónamaður þáttarins Sjáðu alla laugardaga á Stöð 2.
Ásgeir er umsjónamaður þáttarins Sjáðu alla laugardaga á Stöð 2.

Athafnarmaðurinn og sjónvarpsmaðurinn Ásgeir Koleinsson mætti í Brennsluna á FM957 í gærmorgun og las upp andstyggilegar athugasemdir um sig sem skrifaðar hafa verið á veraldarvefnum.

Nokkuð grófar og leiðinlegar færslur en hér að neðan má lesa athugasemdirnar.

„Hvaða Laddi ákvað það að Ásgeir Kolbeins yrði heitasti piparsveinn landsins og hvað þá að líkja honum við George Clooney.“

„Ásgeir Kolbeins!!! Ojj bara, ulabjakk. Rauðhausinn með gervibrúnkuna.“

„Nei í alvöru, hvað gerir þessi maður? Fyrir utan það að vera frægur fyrir það að vera rauðhærður og hvítur í afneitun.“

„Hann er enginn athafnarmaður þó svo að hann sé að þvo einhverja peninga á einhverjum skemmtistað sem hann er skrifaður fyrir.“

„Það voru þeir, Arnar og Ásgeir, sem voru að tala um íbúðina í Innlit útlit um að íbúðin væri ógeðsleg. Held að þeir ættu að líta sér nær, báðir ógeðslegir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.