Mikaela Mayer með COVID-19 og missir af bardaga í Las Vegas Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júní 2020 15:30 Mikaela Mayer með WBC-NABF fjaðurvigtarbeltið sem hún hefur haldið síðan 2018 en myndin er tekin af Instagram síðu hennar. Mynd/Instagram
Hnefaleikakonan öfluga Mikaela Mayer átti að keppa á fyrsta hnefaleikakvöldinu í Las Vegas eftir að kórónuveirufaraldurinn stoppaði allt en á endanum var það kórónuveiran sem stoppaði hana. Mikaela Mayer hefur verið tekin af bardagakvöldinu annað kvöld en hún átti að berjast við Helen Joseph á kvöldinu. Aðalbardaginn verður á milli Shakur Stevenson og Felix Caraballo en bardagakvöldið fer fram á MGM Grand hótelinu í Las Vegas. Mikaela Mayer greindist með kórónuveiruna COVID-19 og er komin í sóttkví. Hún tilkynnti þetta á Instagram síðu sinni í gærkvöldi. Boxer Mikaela Mayer was scheduled to fight Helen Joseph on Tuesday in Las Vegas. https://t.co/CgJaF0NjyC— USA TODAY Sports (@usatodaysports) June 7, 2020 Mikaela Mayer er frábær hnefaleikakona en hún hefur unnið alla tólf bardagana á ferlinum og hefur meðal annars haldið WBC-NABF fjaðurvigtarbeltinu síðan 2018. „Þetta kom mér algjörlega á óvart. Ég er einkennalaus og er komin í sóttkví í burtu frá öllum samkvæmt viðmiðunarreglum. Restin af liðinu mínu voru neikvæð og heilsa þeirra allra er góð,“ skrifaði Mikaela Mayer á Instagram. Þetta er fyrsta bardagakvöldið síðan öllum dyrum var læst í Las Vegas í mars vegna útbreiðslu veirunnar. Spilavítin opnuðu aftur í síðustu viku og nú er komið að fyrsta bardagakvöldinu. „Ég hlakkaði svo til að koma með boxið aftur til ykkar og er sjálf mjög vonsvikin, bæði fyrir mína hönd og líka fyrir hönd liðsins míns, stuðningsmanna minna og andstæðingsins. Helen Joseph vann alveg jafnmikið fyrir þessu og ég og við ætluðum að bjóða ykkur upp á sýningu,“ skrifaði Mikaela Mayer. Hinn 29 ára gamla hefur varið titil sinn þrisvar sinnum í röð þar á meðal á móti Alejöndru Soledad Zamora í október síðastliðnum. Hér fyrir neðan má sjá færslu hennar á Instagram. View this post on Instagram I am heartbroken to report that I will no longer be fighting on Tuesday s Top Rank card due to a positive result in my COVID-19 test yesterday. It came as a complete surprise. I am currently asymptomatic and am quarantining at an off-site location per recommended guidelines. The rest of my team tested negative and they are all in good health. I was really looking forward to bringing back boxing for all of you and I m disappointed for myself, my team, my supporters and for my opponent, Helen Joseph, who worked just as hard to be here this week and put on a show for everyone. After two hard back-to-back camps, not being able to step in to the ring both times, you can imagine how disappointed I am. However, these protocols were put into place for a reason and it's more important to care about the health and well being of my team and the people at this event. So I am complying with the rules set forth by the Nevada State Athletic Commission and Top Rank to keep everyone safe. I will just have to take a quick break but I will be in the ring soon. I appreciate all the love and support. Please tune in to ESPN on Tuesday night and support the card and all of the fighters. Boxing is back and I'll be back.???? #boxing A post shared by MIKAELA MAYER (@mikaelamayer) on Jun 7, 2020 at 11:48am PDT
Box Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Þórey gaf ekki kost á sér: „Snýst um hlutverk mitt innan liðsins“ Handbolti „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Körfubolti Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Handbolti Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Fótbolti Vann þrátt fyrir að vera búin að gera í brækurnar Sport Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Handbolti Taugakerfi Sóleyjar í verkfall eftir HM og fékk hún yfir 39 stiga hita Sport Gagnrýnir hómófóbísk ummæli pabbans um Ralf Schumacher Formúla 1 Leið Íslands á HM skýrari: Í þriðja flokki og fá þrjá mótherja Fótbolti Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Enski boltinn Fleiri fréttir NFL varar leikmenn deildarinnar við glæpahópum Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Framarar náðu toppliðunum að stigum Frábær endasprettur hjá Janusi Daða og félögum Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Viggó öflugur í dramatískum endurkomusigri Sædís og félagar fyrstar til að stoppa Bæjara Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Aron og Bjarki fögnuðu sigri gegn Viktori Gísla Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Hollensku stelpurnar í fínu formi fyrir EM SSÍ: Vantar sem fyrst innisundlaugar á Akranesi og Akureyri Danir vilja halda úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar „Sá sem lak þessu er skíthæll“ Gafst upp á að læra frönskuna Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik „Mér finnst við alveg skítlúkka“ Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Taugakerfi Sóleyjar í verkfall eftir HM og fékk hún yfir 39 stiga hita Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Hamilton vildi hætta eftir Brasilíukappaksturinn Kári í bann fyrir „illkvittið“ högg í andlit Gagnrýnir hómófóbísk ummæli pabbans um Ralf Schumacher Kósovó áfrýjar og Svíar bíða spenntir: „Barátta gegn rasisma“ Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Fæddur árið 2007, brillerar í efstu deild og fann upp á Orra Óstöðvandi Sjá meira