„Voru með 150 í púls þegar þeir voru að fara sofa“ Anton Ingi Leifsson skrifar 4. júní 2020 22:00 Spekingarnir í settinu. vísir/s2s
Tveir af spekingum Pepsi Max-markanna í sumar, Þorkell Máni Pétursson og Sigurvin Ólafsson, eru sammála því að Skagamenn munu ekki lenda í fallbaráttu í sumar og gætu þeir mögulega unnið „neðri deild“ Pepsi Max-deildarinnar. Skagamenn voru til umræðu í þriðja upphitunarþætti Pepsi Max-markanna í gærkvöldi en spekingarnir voru báðir sammála því að Skagamenn þurfi ekki að hafa áhyggjur af því að leika í Lengjudeildinni á næstu leiktíð. „Það fer eftir því hvernig þeir ákveða að stilla væntingarnar. Það er enginn að fara sætta sig við það að HK sé í heimsókn og Skaginn er að liggja til baka og ekki stjórna leiknum. Fólkið í brekkunni er ekki vant þessu og þar af leiðandi verða alltaf væntingar upp á Skaga,“ sagði Þorkell Máni. „Ég held að frábær árangur væri fimmta til sjötta sæti. Þeir gætu dottið í einhverja botnbaráttu en ég held að þeir eigi eftir að enda ekki ofarlega, það er frátekið, en þeir gætu unnið neðri deildina.“ Sigurvin Ólafson tók í sama streng og sagði að þeir myndu ekki lenda í vandræðum í sumar. Þeir séu nú reynslunni ríkari frá því í fyrra. „Eins leiðinlegt og það er, þá er ég sammála þér. Ég held þeir fari ekki í fallbaráttu bara út af þeir eru allt of klikkaðir til þess. Þeir láta það ekki gerast. Þetta eru ljón grimmir náungar og eru búnir að finna blóðbragðið eftir fyrstu sex umferðirnar í fyrra,“ sagði Sigurvin. „Þeir unnu eiginlega öll sterkustu liðin í fyrra og nú eru væntingarnar minni. Í fyrra voru væntingar. Þeir byrjuðu vel og þeir voru með 150 í púls þegar þeir voru að fara sofa.“ Klippa: Hvar endar ÍA?
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-mörkin ÍA Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Sjá meira