Innlent

Tvítugur karlmaður úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna heimilisofbeldis: Hlaut dóm fyrir stórfellda líkamsárás í mars

Sylvía Hall og Nadine Guðrún Yaghi skrifa
Maðurinn hlaut tólf mánaða dóm í mars fyrir annað ofbeldisbrot.
Maðurinn hlaut tólf mánaða dóm í mars fyrir annað ofbeldisbrot. Vísir/Frikki

Tvítugur karlmaður var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. júní eftir að hafa ráðist á nátengdan aðila. Maðurinn var á reynslulausn eftir að hafa hlotið tólf mánaða dóm fyrir hrottalega líkamsárás á sautján ára unnustu sína.

Maðurinn, sem er tvítugur, var dæmdur í héraðsdómi Reykjavíkur í mars síðastliðnum fyrir hótanir í garð barnsmóður sinnar annars vegar og afar grófar líkamsárásir á fyrrverandi kærustu hins vegar. 

Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald í október síðastliðnum vegna árásarinnar og hafði þegar afplánað hálfan dóminn í gæsluvarðhaldi. Hann var því laus úr fangelsi þegar hann var handtekinn um helgina eftir alvarlegt heimilisofbeldi. 

Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn staðfestir að karlmaður um tvítugt hafi verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í dag til 26. júní, en hann var handtekinn í gær grunaður um heimilisofbeldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er varðhaldið á grundvelli almannahagsmuna.

Árasin á fyrrverandi kærustu mannsins á sínum tíma þótti afar hrottafengin. Lögreglu barst í gegnum Neyðarlínuna um blóðuga manneskju við Geirsgötu skammt frá Kolaportinu umrædda nótt. 

Þar hafi karlmaðurinn verið blóðugur í framan og skólaus, sitjandi yfir stúlku sem hafi verið í sjáanlega miklu uppnámi og mjög blóðug í framan. Við nánari skoðun kom í ljós að hægra augað á stúlkunni var svo mikið bólgið að hún gat ekki opnað það.

Kærastan, sem var á þeim tíma sautján ára gömul, hlaut alvarlega áverka í andliti; augntóftargólfsbrot báðu megin, nefbeinsbrot, opið sár á höfði og maráverka víðs vegar um líkamann.

Þá játaði hann sömuleiðis að hafa slegið kærustuna fyrrverandi rúmum mánuði fyrr en bar fyrir sig að hafa verið að verjast spörkum og höggum hennar. Dómurinn taldi framburð hans ótrúverðugan og dæmdi hann fyrir þá árás sömuleiðis.


Tengdar fréttir

Áfrýja dómi yfir manni sem réðst á fyrrverandi kærustu sína

Tólf mánaða fangelsisdómi yfir ungum manni sem réðst á fyrrverandi kærustu sína og hafði í hótunum við barnsmóður sína verður áfrýjað til Landsréttar. Ríkisútvarpið segir að ríkissaksóknari hafi tekið ákvörðun um þetta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×