Lífið

Fallegt heimili arkitektahjónanna í HAF Store við Sólvallagötu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Karitas Sveinsdóttir fór í gegnum íbúðina með Sindra Sindrasyni.
Karitas Sveinsdóttir fór í gegnum íbúðina með Sindra Sindrasyni.

Í síðasta þætti af Heimsókn með Sindra Sindrasyni leit hann við arkitekta hjónunum Karitas Sveinsdóttur og Hafsteini Júlíussyni sem eiga og reka Haf Studio og Haf Store.

Þau eiga fallega íbúð á Sólvallagötunni en vinnustofa þeirra er rétt hjá við Geirsstofu. Þau hjónin hafa tekið íbúðina nokkuð mikið í gegn og er hún mjög björt og falleg.

Eldhúsið er einstaklega vel heppnað og má sjá brot úr þættinum hér að neðan þar sem eldhúsið er skoðað bak og fyrir en þátturinn var á dagskrá á miðvikudagskvöldið á Stöð 2.

Síðasti þátturinn af Heimsókn í bili verður á dagskrá næsta miðvikudagskvöld en þá verður farið í heimsókn hjá dagskrágerðarkonunni Sigrúnu Ósk sem hefur tekið heimili sitt í Akranesi í gegn.

Klippa: Fallegt heimili arkitektahjónanna í HAF Store





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.